30.03.1926
Efri deild: 41. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (2875)

88. mál, björgunar- og eftirlitsskipið Þór

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Eins og hv. þdm. er kunnugt, hefir björgunar- og eftirlitsskipið Þór verið notað til strandvarna, bæði á vertíðinni við Vestmannaeyjar og nú hin síðari árin annarsstaðar við land utan vertíðar.

Vestmannaeyingar rjeðust í að kaupa skipið fyrir sex árum og hafa síðan haldið því úti á hverri vertíð við Eyjarnar, til björgunar og eftirlits, og varið til þess miklu fje. Upphaflega var það ætlunin að kaupa vandað mótorskip, en við nánari athugun var látið af þeirri ætlun. Var um það farið eftir ráðum sjerfróðra manna, svo sem framkvæmdarstjóra Eimskipafjelagsins og Sveinbjarnar Egilssonar. Það var altaf vitanlegt, að gufuskip yrði miklu dýrara í rekstri, en reynslan sannaði, að þau væru traustari en mótorskipin, sem oft hættir til að bila. En eftir örygginu var sókst framar öllu öðru, því að tilætlunin var að hafa þennan farkost á floti til að hjálpa vjelbátunum, þegar í nauðirnar ræki.

Þetta hafði auðvitað mikil fjárútlát í för með sjer, og vil jeg geta þess hjer, þeim til maklegs hróss, sem hlut eiga að máli, að ýmsir, sem heima áttu utan Vestmannaeyja, lögðu ríflegan skerf til fjelagsins. Má þar fremsta nefna ýmsa borgara Reykjavíkur. Hið háa Alþingi sýndi málinu einnig velvild þegar í upphafi, því að það studdi kaupin á skipinu með fjárframlögum.

Þegar málið var komið í það horf, að hætt var við kaup á mótorskipi, var það ljóst, að vel gat farið saman landhelgisgæsla, eftirlit með veiðarfærum og björgun mannslífa. Enda hefir reynslan sannað þetta, og nefnd, sem kosin var af fiskiþinginu í fyrra til að athuga björgunarmálin, hefir nú komist að sömu niðurstöðu og Vestmannaeyingar þegar fyrir 6 árum síðan.

Hepnin hefir þegar frá upphafi fylgt þessu fyrirtæki. Fjelagið keypti í upphafi gamalt skip, en traust og vandað. Það er að vísu nokkuð dýrt í rekstri, en hefir í stað þess ýmsa góða kosti, sem jeg vildi ekki láta fyrir ódýrara skip. Og þegar miðað er við aldur skipsins, getur það alls ekki talist dýrt, hvorki að verði nje í rekstri. En þar fyrir hefir það oft verið erfitt að gera það út, því að af litlum efnum hefir oft verið að taka.

Fjelagið bar giftu til þess að fá þegar í stað góða menn til að stjórna skipinu. Er það okkur Vestmannaeyingum gleðiefni nú, þegar ríkið ætlar að fara að hefja strandvarnir, að geta bent á góða menn til að stjórna skipinu, menn, sem eru starfinu vaxnir og hafa góða reynslu að baki.

Starf skipsins hefir gefist svo vel, að telja má, að það eða annað, sem starfar á sama hátt, sje öldungis ómissandi fyrir útveg Vestmannaeyinga, enda hefir hann stórum aukist á síðari árum. Þó að skipið sje hægfara, hefir það reynst drjúgt við strandvarnirnar. T. d. hefir það nú frá byrjun þessa árs tekið 7 togara í landhelgi.

Á síðasta þingi, er hæstv. stjórn lýsti því yfir, að hún hefði í hyggju að láta lögin um landhelgissjóð koma til framkvæmda og byggja strandvarnarskip, fór jeg þess á leit, hvort ríkið vildi taka að sjer að reka Þór. Hv. sjútvn. beggja deilda og hæstv. stjórn fjellust á, að þetta væri rjett tilhögun. Sjávarútvegsnefndir sendu síðan hæstv. stjórn erindi um þetta og lögðu til, að hún leitaði samkomulags við Vestmannaeyinga um kaup á Þór til handa ríkinu, á þeim grundvelli, er í till. greinir. Um þetta kom síðan brjef frá hæstv. forsrh. (JM), dags. 3. des. f. á., til Björgunarfjelags Vestmannaeyja, að hann væri þess albúinn að festa kaup á skipinu á þessum grundvelli. Þetta brjef lá fyrir síðasta aðalfundi fjelagsins, 26. janúar þ. á., og var þar samþ. till., sem jeg vildi, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mjer að lesa upp:

„ Í fullu trausti þess, að ríkisstjórnin haldi áfram í framtíðinni björgunar- og eftirlitsstarfsemi þeirri hjer við Vestmannaeyjar, sem Björgunarfjelagið hefir gengist fyrir til þessa, samþykkir aðalfundur Björgunarfjelagsins að gefa fjelagsstjórninni fult umboð til þess að selja ríkisstjórninni björgunarskipið Þór, við því verði og með þeim skilmálum, sem teknir eru fram í brjefi forsætisráðherra til fjelagsins, dags. 3. des. 1925“.

Nú hefir málið á ný verið lagt fyrir sjútvn. beggja hv. deilda og lögð fram þessi gögn, er jeg gat um, og er till. á þskj. 229 fram komin með fullu samþykki sjútvn. Nd.

Það er vitanlegt, að Vestmannaeyingar leggja áherslu á það, að þeir geta alls ekki slept skipinu úr sinni eigu, án þess að þeim sje um leið sæmilega trygt, að það haldi áfram uppi við eyjarnar allri hinni sömu starfsemi á vertíðinni, sem það hefir haft að undanförnu. Jeg er þess líka fullviss, að hið háa Alþ. skilur hið beina og óbeina gagn af strandvörnunum og hina miklu þörf Vestmannaeyja og þess mikla flota, sem þar er gerður út, til að hafa slíkt skip til að gæta bæði landhelginnar og veiðarfæranna og ekki síst mannslífanna.

Að endingu vil jeg votta hinu háa Alþingi þakkir fyrir afskifti sín af þessu máli að undanförnu. Það hefir ætíð stutt Björgunarfjelagið, og er það því í fullu trausti, að við viljum afhenda skipið á vald ríkisstjórnarinnar og hins háa Alþingis.