09.03.1926
Neðri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

3. mál, happdrætti og hlutaveltur

Frsm. (Árni Jónsson):

Jeg vil aðeins geta þess, í sambandi við það, sem kom fram við 2. umr. þessa máls, að till., sem fór í sömu átt og brtt. hv. 2. þm. Reykv., kom til umr. í allshn., en við sáum ekki ástæðu til að taka upp þessa breytingu, og hljótum því enn að leggja á móti henni. Að öðru leyti óska jeg ekki að fara að ræða um málið, en get vísað til þess, sem hæstv. forsætisráðherra hefir sagt í ræðu sinni.