08.05.1926
Sameinað þing: 5. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í D-deild Alþingistíðinda. (2933)
34. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá
Eggert Pálsson:
Þegar till. um þetta mál var borin upp í Ed., var hún í tveimur liðum. Með öðrum liðnum var gert ráð fyrir því að gera gangskör að því að teppa framrensli Markarfljóts í Þverá, en hinn liðurinn beindist að því að athuga, hvort ekki væri fært að brúa Þverá, ef hið fyrra teldist ekki fært. Þverá er, eins og kunnugt er, hinn mesti farartálmi, og lýsti jeg því, er jeg bar tillöguna fram, og þarf ekki að endurtaka slíkt mál hjer, því að hv. þm. mun það fullkunnugt. í fyrra lið till. var þá ekki tekið til, hve mikið fje þyrfti til þess að hefta framrenslið, en jeg gat þess í framsöguræðu minni, að það þyrfti ef til vill ekki sjerlega mikið fje til þess í bili eða til bráðabirgða, af því að það hafði áður tekist með ófullkomnum tækjum og litlu fje.
Samgmn. Ed. tók svo við málinu; kom hún að máli við landsverkfræðinginn, og niðurstaðan varð að lokum sú, að hún lagði til, að veittar yrðu 5000 kr. til þessa, og hjelt verkfræðingurinn, að það mundi láta nærri til þess að gerð yrði bráðabirgðaíhleðsla. Jeg tók það fram þá, að ekki væri víst, að 5000 kr. mundu nægja, síst þar sem gjalda yrði varhuga við því, að vatnið legðist ekki alt í einn farveg að austanverðu, og ljet í ljós þá von mína, að framkvæmdir yrðu ekki látnar stranda, þótt kostnaðurinn yrði eitthvað meiri. Hæstv. atvrh. (MG) tók vel í þetta mál og taldi sjálfsagt að verja meiru fje, ef með þyrfti, til þess að afstýra skemdum af vatninu, bæði í Þverá og annarsstaðar. Þessar undirtektir ljet jeg mjer nægja. En þótt mjer hafi ekki þótt rjett að hafna till. Ed., þá leiðir af sjálfu sjer, að jeg muni frekar kjósa þessa till. og greiða henni atkvæði, verði ekki um annað að ræða. Vitanlega hefði jeg helst kosið, að brúarstæði á Þverá hefði verið athugað samhliða. Því jeg veit, að það eru mjög margir óánægðir með framrensli vatnsins í Þverá, aðallega vegna þess, að hún leggur svo miklar hömlur á samgöngurnar. Eru það sjerstaklega þeir, sem austan hennar búa. Að vísu brýtur hún stöðugt land í Fljótshlíðinni, en það eru tiltölulega færri, sem finna til þeirra meina en til samgönguteppunnar. En sú getur stundin komið, að vatnið leggist af sjálfu sjer austur á bóginn. Og ef enginn hemill er á því hafður, er „túrinn“ kominn til þeirra að barma sjer yfir vatnaskemdunum, eins og Fljótshlíðingar hljóta að gera nú.