08.05.1926
Sameinað þing: 5. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í D-deild Alþingistíðinda. (2935)
34. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá
Klemens Jónsson:
Hv. samþingismaður minn (EP) sagði, að það hefði ekki verið rjett af hv. Nd. að hafna till. hv. Ed. En það hefir hún einmitt ekki gert. Hún hefir samþ. till. eins og hún kom frá hv. Ed., en bætt við grein um rannsókn á framkvæmd frekari aðgerða í þessu sambandi. En það er satt, að hjer komu fram raddir um það að verja sem minstu fje til bráðabirgðaaðgerða, nema það væri álit landsverkfræðings, að slíkt gæti komið að verulegum notum, og í raun og veru er hjer enginn ágreiningur milli deildanna, því það er auðvitað, að landsverkfræðingur ræður ekki til framkvæmda og kostnaðar, nema það sje nokkum veginn trygt, að það verði að gagni. Mjer heyrðist líka hv. samþingismaður minn (EP) vera ánægður með þessi úrslit hv. Nd., nema hvað hann sagði, að það, sem vekti mesta óánægju eystra, væri það, að Þverá hindraði mjög alla flutninga, og því hefði hann lagt mikla áherslu á það í hv. Ed., að hún yrði brúuð. Um þetta eru allir sammála, en það er bara ekki aðeins Þverá, sem þarf að brúa, heldur árnar allar. En þegar um þetta var rætt við landsverkfræðing, þá gat hann þess, að hugsanlegt væri að sameina allar ámar í eitt við Stórum Dímon og brúa þær þar í einu. Og þetta er eitt atriði, sem þarf rannsóknar. En jafnframt sagði hann, að ef brúa ætti Þverá eina, þá gæti vel farið svo, að hún breytti sjer þannig, að brúin stæði innan skamms á þurru landi.
Hv. þm. N.-Þ. (BSv) sagði, að þessi rannsókn væri svo mikið verk, að það væri ofætlun fyrir landsverkfræðing að framkvæma hana fyrir næsta þing, svo mikið sem hann hefði nú að gera. Það er auðvitað, að landsverkfræðingur þarf víða að fara og í mörg horn að líta; t. d. þarf hann að fara norður í Þingeyjarsýslu og athuga þar um brúargerð fyrir kjósendur hv. þm. (BSv) og margt fleira. En ef hann treystist til að gera þetta, þá er ekki ástæða fyrir þingið að segja: Nei, þetta er þjer ofætlun! — Annars legg jeg ekki aðaláhersluna á, að þessu verði lokið fyrir næsta þing, heldur hitt, að niðurstaðan verði áreiðanleg, þegar hún kemur. Og verði hún ekki tilbúin á þingi 1927, þá ætti hún þó að geta komið fyrir þingið 1928.
Loks vil jeg geta þess, að þegar nefndin fjallaði um þetta mál hjer í Nd., þá var haldinn sýslunefndarfundur eystra, og átti jeg tal við sýslunefndaroddvita, að hann legði málið fyrir sýslunefnd. Og sýslunefnd samþykti svo till. um málið, sem er nákvæmlega í samhljóðan við till. hv. Nd. Þessi till. var samþ. með sjö samhljóða atkv., en þrír sýslunefndarmenn greiddu ekki atkv.
Jeg mun svo ekki fara um till. fleiri orðum, en vænti þess, að hún verði nú samþ. í sameinuðu þingi.