08.05.1926
Sameinað þing: 5. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í D-deild Alþingistíðinda. (2939)
34. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg vil aðeins geta þess, að jeg vænti, að ekki reynist nauðsynlegt að seilast suður í Mesopotamíu eftir manni til þess að undirbúa þetta verk, enda skoða jeg þau ummæli hv. þm. N.-Þ. (BSv) sem gamanyrði, og sannast að segja, þá held jeg, að hv. þm. finni sjer þetta til, til þess að segja eitthvað, ekki vegna þessa máls, sem fyrir liggur, heldur annars, sem bráðum verður farið að tala um á ný.