05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (2952)

86. mál, rýmkun landhelginnar

Ólafur Thors:

Æfinlega þegar jeg hefi einhver áhugamál, reyni jeg að gera mjer ljósa þá örðugleika, sem við er að stríða.

Hið sama hefi jeg gert hjer, bent á örðugleika þá, sem þessu máli eru samfara, en vil þó á engan hátt telja hug úr forvígismönnum málsins, enda hefir hv. flm. (PO), sem víðfrægur er fyrir áhuga sinn á þessu máli, lýst því rjettilega hjer í deildinni í dag, að jeg fylgi honum af fullum hug að málum.

En mjer er það ljóst, að þau björg, sem við er að glíma, eru ekki við íslensku útgerðarmennirnir, því að okkur er það ljóst, að rýrnkun landhelginnar horfir til þjóðþrifa, þótt við ef til vill missum spón úr aski í bili. Vandinn er að fá Englendinga í lið með sjer. Jeg tel hættu á, að þeir skilji ekki og viðurkenni ekki sem gögn í málinu, að smábátaútvegurinn íslenski leggist niður, ef ekkert er að gert. Þeir spyrja um aflann á djúpmiðunum. En eins og jeg gat um í fyrri ræðu minni, er enn ekki sannanlegt, að hann sje að minka. Mjer fanst ekki gæta fullrar þekkingar hjá hv. flm. á þessu atriði, og lái jeg honum það ekki, enda er eðlilegt, að þar sem jeg hefi fengist við stórútgerð, þá þekki jeg betur til um hana en hann.

Jeg vil benda á það, að þegar togaraútgerðin byrjaði hjer eftir aldamótin, þótti mikið að fá 1200 skp. á skip yfir vertíðina. En nú eru þess dæmi, að skip hafa aflað 8000 skp. á nokkru lengri tíma. Og sama skipið, sem 1909 fjekk 1200 skp., fjekk 1924 4000 skp.

Hv. flm. (PO) spurði, hvernig farið hefði 1924, ef Halinn hefði ekki fundist. Jeg skal upplýsa, að þótt veiðar hefðu ekki verið stundaðar á Halanum það ár, mundi aflafengur ársins samt hafa orðið meiri en dæmi voru til áður.

Jeg skal svo ekki orðlengja um þetta, aðeins ítreka það, að jeg tel mest um vert að sannfæra breska útgerðarmenn, því ef þeir eru orðnir þeirrar skoðunar, að þetta sje þeirra hagsmunamál, þá lætur breska stjórnin ekki á sjer standa að gefa samþykki sitt. Jeg lít svo á, að eyðing grunnmiðanna sje bending um það, hvernig fara muni á djúpinu. En jeg veit ekki nema Bretar heimti naglafarið, veit ekki nema þeir heimti sannanir fyrir því, að djúpmið sjeu að eyðast, þótt jeg til lengstu laga voni, að hægt verði að sannfæra þá áður en ógæfan er skollin yfir.