05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í D-deild Alþingistíðinda. (2953)
86. mál, rýmkun landhelginnar
Jón Baldvinsson:
Jeg vænti þess ekki, að hv. þm. Borgf. (PO) hafi dregið það í efa, að jeg fylgdi þessu máli. En hitt er ekki nema eðlilegt, að menn í svona máli hugleiði erfiðleikana, sem við er að etja, og hvaða leið eigi að fara til að ná markinu, um rýmkun landhelginnar, sem er sameiginlegt mál allra Íslendinga.
Jeg get hugsað, að auðveldara yrði að vinna stjórnmálamennina bresku en þá menn, sem hafa hag af því að láta landhelgina vera eins og hún nú er. Jeg get hugsað mjer, að frjálslyndir stjórnmálamenn líti frekar fram í tímann en stundarhagsmunamennimir. Og þess vegna er jeg ekki trúaður á aðferð þá, sem hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) stakk upp á, því að ef hinir ráðandi menn í Englandi fást til að sinna þessu máli og gera út um það með okkur, þá eru útgerðarmenn í Bretlandi bundnir við það.
En það, sem jeg óttast mest, er það, hvað þessi atvinnurekstur, botnvörpungaveiðamar, ganga erfiðlegar nú en áður í Englandi, að því er sagt er, og að þess vegna verði tekið þinglega í þetta mál. Er því þessi leið, sem hv. þm. stakk upp á, ekki líkleg til úrlausnar málinu í mínum augum.
Hv. þm. Borgf. (PO) sagði, að við værum ekki samningsbundnir öðrum en Bretum um landhelgina. Jeg veit ekki, hvort svo er. Stjórnin hefir ekkert látið til sín heyra um þetta mál. En jeg tel líklegt, að fleiri þjóðir telji sig hafa samninga í einhverju formi um þetta, þótt það sjeu ekki beinir samningar við okkur. En ef Englendingar fallast á þetta, þá er stærsti aðilinn unninn, það er satt.
Við verðum að leita lags með þetta eins og annað, sem snertir alþjóðareglur, sem þetta heyrir til. Vil jeg svo ekki fara meira út í þetta, en teldi æskilegt, að þetta kæmist í framkvæmd, þótt ekki væru friðuð nema helstu miðin, þar sem smábátaveiði helst er stunduð.