07.05.1926
Efri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í D-deild Alþingistíðinda. (2962)
86. mál, rýmkun landhelginnar
Jónas Jónsson:
Það hefir nú skýrst hjá hæstv. forsrh. (JM), að Englendingar hafa aldrei krafist þess af okkur, að við ljetum þá fá lausar hendur um veiði fyrir suðurströndinni, enda þótt við færum fram á að fá Faxaflóa friðaðan. Jeg óttast, að Englendingar sjeu ekki eins leiðitamir við hv. þm. Borgf. og hæstv. forsrh. (JM) virðist halda. Nýlega kom fram krafa um það í Englandi, að stjórnin þar beitti sjer á móti okkur í landhelgismálinu. Að vísu vildi stjórnin fara að lögum, en þetta sýnir, að ekki horfir glæsilega um það að færa út landhelgina frá því sem nú er. Og þar sem nú er þar að auki farið fram á útgjöld úr ríkissjóði með þessari till., og sýnilegt, að hún verður til einskis, þá greiði jeg atkvæði á móti henni.
Jeg vil minna hæstv. forsrh. (JM) á það, sem hann sagði í Sþ. um daginn, að altaf hefði verið vandað óaðfinnanlega til sendimanna Íslands. Það vita þó allir, að sendimaðurinn, sem átti að fara til Bandaríkjanna, komst aldrei þangað, og með þessu vil jeg minna hæstv. forsrh á það, hve ósannsögull hann er. Og eigi nú að senda hv. þm. Borgf. (PO) til útlanda, til þess að fríska sig upp, þá gef jeg ekki mikið fyrir það.