08.03.1926
Efri deild: 22. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í D-deild Alþingistíðinda. (2973)

54. mál, kaup á snjódreka og bifreiðum

Flm. (Jónas Jónsson):

Jeg get verið stuttorður um þessa tillögu, því að jeg hefi látið dreifa út með þskj. sjerprentaðri grein, þar sem tekið er fram flest af því, sem segja þarf um þetta mál.

Jeg vil taka það fram, að þessi bíll hefir aldrei verið reyndur hjer, en bílafirma það í Frakklandi, sem býr hann til, hefir sent hingað einn eða tvo venjulega bíla. Þetta firma er mjög stórt og þekt, svo að ekki mun þurfa að óttast, að hjer sje um neina blekkingu að ræða.

Sú er saga þessarar bifreiðar, að frá 1906 og fram á miðjan styrjaldartímann hafði rússneskur hugvitsmaður verið að gera tilraunir með bíla. Hann var forstöðumaður bílstöðva rússneska hersins. Honum þótti mikið við liggja að geta gert bíla, sem hægt væri að fara á allan veturinn yfir snjóbreiðurnar rússnesku. Hann var kominn nokkuð á leið með þessar tilraunir, þegar hann varð að flýja land. Fór hann þá til Parísar og komst þar í samband við þetta bílafirma. Síðan hefir tilraunum þessum miðað áfram, svo að nú síðustu árin hafa menn farið alveg ótrúlegar ferðir á þessum bíl, t. d. yfir þvera Sahara og nú í vetur frá Kaspíhafi til Indlands. Einnig hafa verið gerðar tilraunir með hann í Alpafjöllum. Enginn vafi er á því, að slíkur bíll á erindi til okkar.

Ein uppgötvun úr stríðinu hjálpaði til að fullkomna þennan snjóbíl, en það voru „tankarnir“. Það voru nokkurskonar bílar. Þeir, sem þekkja heysleðana, sem notaðir eru hjer á landi, geta skilið, hvernig snjóbíllinn gengur. Þar, sem eru afturhjól á venjulegum bílum, eru 6 hjól á snjóbílnum, og spannarbreið reim utan um þau úr gúmmí að utan, en einhverju sterkara efni að innan. Á þessu flýtur bíllinn. Jeg hefi og sjeð á myndum, að skíði eru sett undir framhjólin.

Jeg býst við, að ef þessu máli verður vísað til samgmn., sem eflaust verður gert, muni vegamálastjóri segja þar um álit sitt. Hann hefir fengið heimildir um bílinn frá sama stað og jeg. Áreiðanlega yrðu einhver not af þessum bíl, og finst mjer, að gjarnan mætti kosta 10 þús. kr. til þess að gera hjer tilraunir með hann. Sjálfur bíllinn mundi kosta um 7 þús. kr., en auk þess má búast við ýmsum smákostnaði í sambandi við þetta. Jeg hefi ekki sjeð slíka bíla sjálfur, en sonur eins af prófessorunum við háskólann hefir sjeð þá í Kaupmannahöfn og sagt, að auðvelt mundi vera að fara á þeim t. d. frá Borgarnesi til Blönduóss, eins og vegurinn er nú.