08.03.1926
Efri deild: 22. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í D-deild Alþingistíðinda. (2974)

54. mál, kaup á snjódreka og bifreiðum

Atvinnumálaráðherra (MG):

Mjer þótti vænt um að heyra, að mál þetta verður athugað í nefnd, því að það mun þurfa athugunar við. Jeg hefi átt tal um þetta mál við vegamálastjóra. Hann hefir sjálfur skoðað bílategund þá, sem hjer er um að ræða, og verið farþegi á honum, og hann álítur, að þessi tegund sje tæpast sú rjetta til að bæta úr samgöngunum hjá okkur, t. d. austur yfir fjall, þar sem hann muni ekki vel til þess fallinn að fara yfir lausan snjó, nema þá mjög grunnan.

Hv. flm. (JJ) talaði um, að farið hefði verið á þessari tegund bíla yfir Sahara. En Sahara er að mestu leyti öldótt sandland, og mætti því kanske fara hjer yfir Sprengisand, en til þess þarf þá að brúa árnar. Helstu torfærurnar hjer eru hraun og keldur, fyrir utan árnar, og býst jeg ekki við, að bíllinn fari það. En þó að hann færi frá Borgarnesi til Blönduóss, finst mjer það ekki svo mikið; sá vegur er að mestu leyti akfær.

Bíll þessi er lítill, aðeins fyrir 4 menn, og vjelin fremur afllítil, en það, sem um er að gera, er að fá verulega vjelsterkan bíl, sem gæti rutt burtu fönn, en til þess er þessi bíll of kraftlítill. Þá ættum við heldur að fá bíl, sem stjórnin hefir verið að hugsa um og kostar um 25 þús. kr. Vegamálastjóri vildi fá fjárveitingu í fjárlögin 1927, en stjórninni þótti rjettara, ef af kaupum yrði, að kaupa þessa bifreið á yfirstandandi ári og tók því ekki þessa till. vegamálastjóra upp í fjárlagafrv.

Bifreiðartegund sú, sem hv. flm. (JJ) hefir mælt með, hefir ekki reynst vel í Noregi í snjó, og hefi jeg hjer í höndum brjef frá firma einu þar, sem hefir reynt hana. Segir firmað, að það noti hana sem venjulega bifreið og að það hafi tekið af henni þann útbúnað, sem átti sjerstaklega að gera hana hæfa til notkunar í snjó, en með snjó á jeg við lausa fönn, því að á hjarni geta allar bifreiðar farið.