11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (3001)

113. mál, slysatryggingariðgjald

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg þarf ekki mikið að segja um þessa till., því að jeg hefi lýst afstöðu minni til hennar í öðru tilefni og get vísað til þess. Jeg skal aðeins geta þess, að jeg tel vel geta samrýmst lögunum að gera þessa breytingu, sem farið er fram á, eins og jeg tók áður fram, þegar samskonar atriði var til umræðu. En þá mun ekki þetta atriði hafa getað komið til atkvæða, af því að málinu var vísað til stjórnarinnar, ef jeg man rjett. (JBald: Það er að fella frv.). Það er að vísa því til stjórnarinnar. Þar af leiðir, að jeg get ekki betur sjeð en að þessi till. geti komið til atkv.