11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (3002)

113. mál, slysatryggingariðgjald

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Það lítur út fyrir, að hv. 2. þm. Reykv. (JBald) vilji halda fram, að hans skilningur skuli vera skoðaður sem einhver yfirþingsköp eða sem lög. En það tel jeg vera ofmetnað einn, að láta svo um mælt hjer í hv. heild.

Þetta, sem liggur fyrir, hefir ekki verið felt af deildinni. Jeg bar fram frv. um það að undanskilja einn flokk, sem nú er tryggingarskyldur; í öðru lagi um það að breyta iðgjaldagreiðslu sjómanna, einnig þeirra, sem hjer um ræðir, þannig, að ríkissjóður greiddi ákveðinn hluta af iðgjaldinu, útgerðarmenn og hásetar sömuleiðis vissan hluta. Það er dálítið annað en það, sem hjer er farið fram á. Þó að í hv. deild hafi verið felt, að ríkissjóður skyldi taka þátt í iðgjaldagreiðslu vissra tryggingarskyldra flokka innan sjómannastjettarinnar, þá veit jeg, að hv. deild ætlar sjer ekki að fella það, að smáútgerðarmenn, sem ekki eru færir um að borga þetta iðgjald, skuli ekki skyldaðir til þess. Stjórn slysatryggingarsjóðsins lítur svo á, að þetta sje hægt að gera og eigi að gera án nokkurra lagabreytinga. Hjer er því aðeins verið að tala um að skora á stjórnina að fylgja þeim skilningi á slysatryggingarlögunum, sem stjórn sjóðsins álítur rjettan vera.

Hártoganir hv. þm. (JBald) duga ekki. Það verður aldrei álitið, að sá maður vinni fyrir hlut eða hundraðsgjaldi, sem er kaupamaður. Jeg hefi aldrei heyrt það nefnt, þó að einhver hafi fengið stúf eða eitthvað svoleiðis, eða lifrarhlut af togara. Lifrarhlutur er ekki hundraðshlutur af afla, það læt jeg hv. þm. vita, hafi hann ekki vitað það áður. (JBald: Það er hlutur af afla.) Það er allur lifraraflinn. (J- Bald: En lifrin er hlutur af afla). Já, jeg held, að málvenjan sje ekki sú, að sá, sem fær t. d. svokallaðan stúf, á Vestfjörðum, geti bæði verið kaupamaður og líka róið upp á hlut. Hann verður alls ekki talinn hlutarmaður, ef hann er ráðinn upp á vikukaup eða mánaðarkaup. Það er að minsta kosti ekki íslenskt mál.

Jeg veit, að þessi tilraun hv. þm. til þess að eyðileggja þessa tilhögun er af sömu rót runnin og áður. Hann heldur, að sjómönnunum sje þægð í því. En það er misskilningur. Þeir menn, sem um er að ræða, eru mest á Vestfjörðum. Þeir vilja ekki hafa þá breytingu, sem gerð var á slysatryggingarlögunum í fyrra. Bæði í Hnífsdal og Bolungarvík báðu þeir um breytingu. Einn háseti í Hnífsdal talaði fyrir þessari brtt., og allir aðrir greiddu henni atkv. Þetta gæti hv. þm. fengið að vita hjá hverjum sem var á þessum þingmálafundum í jan. s. l.

En hv. þm. (JBald) hefir lagt svo mikið kapp á að koma þessari till. fyrir kattarnef, þótt hann sjái það, að það verði sjómannastjettinni til skaða.