11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í D-deild Alþingistíðinda. (3006)

113. mál, slysatryggingariðgjald

Magnús Torfason:

Hv. flm. (JAJ) vísaði í þskj. 364 og álitsskjal slysatryggingarinnar. En það er nú svo, að þessi orð, sem hann tilfærir úr álitsskjalinu, sýna það, að þeir góðu menn hafa ekki skilið, við hvað er átt. Þeir eru að tala um samlagsútgerð. En þegar menn eru ráðnir upp á hlut, þá er það engin samlagsútgerð. Þeir eiga ekkert í skipinu, og svo er ýmislegt tekið frá, svo sem olía, beita o. fl., eftir samningi, sem er breytilegur. Meðan jeg var vestra var ýmist verið að breyta þeim samningum fyrir útgerðarmenn eða háseta.

Jeg kannast við, að það gæti verið mikill munur á að gera undantekningu, ef eigendur fylgdu sjálfir með á bátunum. Þá er nokkurskonar fjelagsskapur milli hans og háseta, og ef eigandi er með, finnur hann til þeirrar ábyrgðar, er á honum hvílir, og getur fylgt henni á hverjum tíma.

Jeg nefndi engan mann í minni ræðu og ekkert kauptún. Um Magnús Thorberg er mjer óhætt að segja það, að jeg hefi aldrei sagt skakt orð í hans garð, en oft lýst yfir því, að hann væri þekkilegastur útgerðarmaður á Ísafirði, og jeg hefi aldrei viljað meiða hann í einu nje neinu. Jeg tók aðeins þessa sögu sem dæmi um það, að alt öðruvísi horfir við, ef eigandi báts er sjálfur á honum, og um það, að lítið orð, sagt í óaðgætni, getur haft hinar alvarlegustu afleiðingar og bakað þeim, er segir, mikla ábyrgð. En jeg get sagt hv. flm. (JAJ), að þetta er ekki einsdæmi. Jeg þekki tvö og þó þrjú dæmi, sem gerðust í minni tíð vestra, þó ekki á Ísafirði, sem lík eru því, er jeg nefndi.

Hv. flm. (JAJ sagði, að jeg væri búinn að gleyma útgerðinni vestra. Honum er ekki of gott að koma með getsakir í minn garð, en það get jeg sagt hv. þm. (JAJ), að það er líka útgerð fyrir austan, og að jeg er henni vel kunnugur, þar sem jeg bý á sjávarbakkanum. Þess vegna eru augu mín betur opin fyrir hættunni. Og það er smáhætta að róa á Ísafirði á móts við það að róa á Eyrarbakka og Stokkseyri. Það er enginn barnaleikur. Og eins og menn muna, hefir tvisvar sinnum í vetur orðið að beiðast hjálpar strandvarnarskipa og botnvörpunga til þess að bjarga bátunum þaðan úr bráðasta háska.

Jeg fæ ekki skilið, að það komi við útgerð eða ekki, þótt jeg hafi lýst skilningi mínum á lögum, sem jeg hefi verið sjálfur með að semja. Það vorum við hv. 2. þm. Reykv., sem sjerstaklega unnum að því í fyrra að koma slysatryggingarlögunum á. Og þetta frv., sem hjer liggur fyrir, á enga stoð í þeim lögum nje öðrum lögum.