11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í D-deild Alþingistíðinda. (3009)

113. mál, slysatryggingariðgjald

Forseti (BSv):

Svohljóðandi till. til rökstuddrar dagskrár hefir mjer borist frá hv. 2. þm. Reykv. (JBald):

Þar sem deildin hefir áður vísað máli um sama efni til stjórnarinnar, þykir henni ekki ástæða til að gera ályktun um tillöguna — og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.

Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) skaut því til forseta að fella úrskurð um, hvort till. mætti koma til atkvæða, og mun hann í því efni eiga við 32. gr. þingskapa.

Hjer er ekki um brtt. við lagafrumvarp að ræða, heldur þáltill, og koma því ákvæði þessi ekki hjer til greina. — Athuga mætti ákvæði 28. gr. um lagafrv., en þeim er ekki heldur til að dreifa í þessu sambandi.

Þótt svo yrði litið á, að þetta sje brtt. um samskonar efni og stóð í frv. því, er vísað var til stjórnarinnar, þá er þess að gæta, að í heilu frumvarpi eru mörg ákvæði, og er ekkert þeirra sjerstaklega felt, þótt frumvarpi sje vísað til stjórnarinnar. — Þótt hjer komi fyrir eitt atriði, er einnig átti heima í umræddu frv., þá verður ekki litið svo á, sem þetta atriði hafi felt verið, vegna þess að deildin hafi kveðið ákveðinn dóm yfir því.

Fyrir allar þessar ástæður tel jeg, að ekki beri að taka frávísunarkröfu hv.

2. þm. Reykv. (JBald) til greina, og kemur því þáltill. til atkv.