10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í D-deild Alþingistíðinda. (3018)

116. mál, strandferðir Esju

Atvinnumálaráðherra (MG):

Mjer skilst, að hv. þm. (ÞorlJ) geri ekki að kappsmáli, hvert skipið sje. Getur vel verið, að svo hittist á, að nýja skipið komi einmitt um þetta leyti. En jeg slæ engu föstu enn sem komið er. Út af því, sem hv. þm. sagði, að lítið mundi vera ódýrara að láta skipið liggja en fara strandferðir, vil jeg benda á það, að þegar framkvæmdarstjóri Eimskipafjelagsins var að gera áætlun um útgjöld til Esju 1927, miðaði hann við, að skipið væri ekki í ferðum lengur en það var 1925. Annars taldi hann þurfa hærri upphæð. Í þessari skýrslu, sem hv. flm. (ÞorlJ) vitnaði í, hlýtur að vera tilfærður viðgerðarkostnaður, en viðgerðin fór fram meðan skipið lá.

Nú er árlegur halli af rekstri skipsins um 150 þús. kr. En tapið hlýtur að sjálfsögðu að verða mest vetrarmánuðina. Styður margt að því: Tafir sakir myrkurs og óveðra, minni póstflutningur, færri farþegar.

Tæpast virðist ástæða til að vísa till. til nefndar; fengi hún þar sama og enga meðferð, sökum naums tíma.