11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (3023)

116. mál, strandferðir Esju

Þorleifur Jónsson:

Jeg get verið þakklátur hv. samgmn. fyrir það, að hv. frsm. hennar hefir lagt með því, að till. næði samþ. Býst jeg því við, að hún fái byr í deildinni. En þar sem hann gat um það, að ekki yrði hægt að einskorða við vissan dag, hvenær Esja byrjaði strandferðirnar, þá getur það vel verið, og verður ekki tekið hart á því. En verði till. samþ., vona jeg, að Esja verði látin hefja ferðir svo fljótt sem unt er.

Það hefir unnist við þessar umr., að hæstv. atvrh. (MG) og hv. samgmn. hafa viðurkent þörfina á auknum samgöngum milli Austurlandsins og Reykjavíkur. Vænti jeg þess, að í framtíðinni verði sjeð sem best fyrir þessum ferðum.

Hvað það snertir, að skipið, þegar það kemur frá Austfjörðum, fari til Ísafjarðar, þá gerir það ekkert til, heldur hafa þeir, sem komu að austan, þá betra tækifæri til að dvelja hjer dálítinn tíma, meðan Esja skreppur vestur. Jeg vona, að þetta mál fái byr í hv. deild, eins og í hv. samgmn.