11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í D-deild Alþingistíðinda. (3024)

116. mál, strandferðir Esju

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg sje ekki, að meðferð hv. samgmn. gefi mjer tilefni til þess að segja annað en það, sem jeg sagði í gær, nema að jeg vil taka það fram, að um þetta leyti árs eru góðar samgöngur til Ísafjarðar, því að bæði Gullfoss og Goðafoss koma þar í þessari ferð, sem hjer um ræðir. En verði engin skipsferð, þá tek jeg ekkert af um það, að Esja fari þangað eina ferð, ef hægt er.

En það er altaf svo, að þegar einhver biður um eitthvað hjer í þinginu, þá biður undireins annar um eitthvað svipað.

Jeg tek sem sagt ekkert af um það að senda skipið til Ísafjarðar. En jeg vonast jafnframt eftir því, að hjeraðsbúar láti til sín heyra um það, ef þeir vilja fá þessa ferð.