12.05.1926
Neðri deild: 77. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í D-deild Alþingistíðinda. (3039)
123. mál, launauppbót símamanna
Flm. (Jakob Möller):
Hv. þm. Barð. (HK) hefir ekki athugað það, að í fjárlögunum fyrir 1927, sem nú hafa nýskeð verið afgreidd frá þinginu, er það tekið upp að bæta laun símamanna fyrir árið 1927. Jeg er ekki að fara fram á það, heldur að þeir fái einnig samskonar uppbót fyrir árið 1926. Því var ekki hægt að koma við í fjárlögunum.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. atvrh. (MG) sagði, vil jeg benda honum á það, að stjórnin hefir margsinnis greitt slíkar upphæðir sem þá, er hjer er farið fram á. Jeg skal minna hann á það, að árið 1924 greiddi hún fje til ríkisráðskostnaðar og setti svo samskonar upphæð í fjárlögin fyrir 1926. Upphæðina hafði hún þannig greitt upp á væntanlegt samþykki þingsins. Þessi upphæð var lækkuð fyrir 1926, en eftir sem áður stóð upphæðin, sem greidd var 1924. Og stjórnin fjekk engar ávítur fyrir þetta.
Það, sem hæstv. ráðh. (MG) óttast mest, er ekki annað en grýla, því að það liggur í augum uppi, að þeir þdm., sem greiða þáltill. atkv., geta ekki atyrt stjórnina síðar meir fyrir það að hafa farið að vilja deildarinnar.