14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í D-deild Alþingistíðinda. (3043)
123. mál, launauppbót símamanna
Atvinnumálaráðherra (MG):
Eftir því, sem hv. flm. (JakM) segist frá, þá er hjer aðeins um yfirlýsingu hv. deildar að ræða um það, hvort hún muni fallast á, að þessi uppbót sje greidd úr ríkissjóði. Hv. flm. þarf því eigi að bíða með neinni eftirvæntingu eftir því, hvað stjórnin segir. Það er ekki ástæða til þess fyrir hana að segja neitt, nema þá það, að rjett væri, að henni væri gefinn laus taumur með að bæta fleirum upp, sem úr litlu hafa að spila. Þar má t. d. nefna starfsmenn í stjórnarráðinu, enda kvarta þeir oft, og fáir eða engir starfsmenn hins opinbera eru eins illa launaðir. Þar eru lögfræðingar, sem aðeins hafa 2000 kr. byrjunarlaun föst og hafa varið 10–12 árum til náms.
Það er erfitt fyrir stjórnina að lofa sjerstökum flokki manna uppbót, því að oft og tíðum geta aðrir sýnt fram á, að þeir hafi sömu sanngirniskröfu fram að færa. Það er ekki altaf, að þeir, sem hæst gala, hafi mest til síns máls. Jeg segi því ekkert um, hvað stjórnin muni gera, ef meiri hl. hv. deildar samþ. till., enda er þetta hál braut að komast á, og jeg hlýt að endurtaka það, að mál þetta er óvanalega fram borið og að mínu áliti ekki í samræmi við þingsköpin.