14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (3055)

128. mál, réttur erlendra manna til þess að leita sér atvinnu á Íslandi

Flm. (Jón Baldvinsson):

Erlendir verkamenn eru ekki fluttir inn fyrir þá sök eina, að atvinnuleysi sje erlendis. Það skeður svo nú, að atvinnurekendur ráða þá til sín, en þeir koma ekki af sjálfsdáðum. Annað mál er það, sem hæstv. atvrh. (MG) talar um, ef verkamenn flytjast sjálfir hingað til lands, í því skyni að setjast hjer að og sjá fyrir sjer og fjölskyldu sinni. Við því er ekkert að segja. En nú eru þeir fluttir inn til stutts tíma, t. d. aðeins yfir sumarið. Það er því erfitt að fá góða verkamenn til að vinna fyrir lágt kaup í erlendu ríki, fjarri heimkynnum sínum.

En það gæti hugsast, að atvinnurekendur vildu flytja inn erlenda verkamenn, til þess að geta sagt við innlendu verkamennina: Nú verðið þið að slaka til um kaup, annars flytjum við inn alla verkamenn, sem við þurfum. Jeg sje ekkert vit í því, þegar við erum að berjast við atvinnuleysi í landinu sjálfu, að atvinnurekendur, innlendir eða erlendir, geti flutt inn erlendan vinnukraft, til þess að fella laun innlendra verkamanna, svo sem fullyrt er að einn norskur atvinnurekandi á Siglufirði hafi gert nú fyrir skemstu.