11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í D-deild Alþingistíðinda. (3064)

118. mál, rannsókn veiðivatna

Benedikt Sveinsson:

Mjer þótti vænt um, þegar jeg sá þessa þáltill., því að það er mjög gagnlegt fyrir landsmenn, að þetta erindi sje rekið, sem hæstv. atvrh. (MG) viðurkendi. Að vísu hefði verið æskilegast, að bein fjárveiting til þessa hefði komist í fjárlög, og svo mundi sennilega hafa orðið, ef ekki hefði verið horfið að því ráði að samþ. fjárlög óbreytt eins og þau komu frá Ed.

Jeg þekki Pálma Hannesson að áhuga og dugnaði. Hann er jarðfræðingur og dugandi landkönnuður. En jeg vil engu að síður fastlega mæla með því að ráða þennan þýska vísindamann árlangt, og býst jeg við, að deildin fallist á það, einkum þar sem hæstv. atvrh. telur skaða, að þessa manns sje ekki lengur kostur.

Einn fræðimaður getur ekki leyst af hendi það verkefni, er hjer liggur fyrir, á einu árí. Mun því áreiðanlega verða ærið starf eftir handa landa vorum, jafnvel þótt hann yrði í langlífasta lagi, sem vjer væntum.

Þessi útlendi vísindamaður hefir ferðast hjer áður og skrifað mjög skilmerkilega og skarplega um rannsóknir sínar. Hann er orðinn nokkuð kunnugur staðháttum og stendur því betur að vígi en ella, og úr því að hans er ekki kostur nema næsta sumar, þá þykir mjer slaklega ráðið að hafna honum. Mjer þykir líklegt, að frekar þurfi verkfræðing en fiskifræðing til þess að sprengja berg, þar sem fossar falla, en hitt er og víst, að fiskifræðingur hefir best vit á því, hversu til skal haga, svo að laxinn megi upp stikla.