04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

11. mál, raforkuvirki

Frsm. (Jón Kjartansson):

Jeg ætla aðeins að segja örfá orð fyrir hönd allshn. Frv. þetta hefir gengið í gegnum hv. Ed. og þar hefir verið gerð á því sú efnisbreyting við 4. gr., að ef bæjar- eða sveitarstjórn óskar að taka raforkuvirki eignarnámi, þá sje það heimilt að liðnum 1/5 hlutum einkaleyfistímans. Annars er frv. eins og þegar það kom frá hæstv. stjórn, og læt jeg nægja með að vísa til greinargerðar hennar, en vænti þess, að frv. verði samþykt.

Í 8. og 9. gr. er vísað til 6. greinar, en það er prentvilla; á að vera 5. gr. Jeg hefi átt tal um þetta við skrifstofustjóra, en hann hefir ekki talið ástæðu til að senda frv. aftur til hv. Ed. af þessum orsökum.