11.05.1926
Neðri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (3105)

84. mál, þjóðaratkvæði um þinghald á Þingvöllum

Flm. (Sveinn Ólafsson):

Það eru aðeins nokkur orð, sem jeg vildi segja út af ræðu hæstv. forsrh. (JM). Jeg get fyllilega viðurkent það, að þetta mál hefir ekki fengið mikinn undirbúning, sem eðlilegt er, þegar því nú er hreyft opinberlega í fyrsta sinn, og að sjálfsögðu er nauðsynlegt, að málið fái hann, áður en endanleg ákvörðun er tekin og til framkvæmda kemur. En í till. liggur ekki nein ákvörðun um framkvæmdir, heldur lýtur hún að eftirgrenslun um óskir þjóðarinnar um þingflutninginn. Vitaskuld getur margt aftrað honum í svip, enda þótt meiri hl. þjóðarinnar óski eftir honum. Hinsvegar er ljóst, að ef úr þingflutningi ætti að verða, þá er ekki gerlegt að draga viðbúnað lengur, því að ekki er langur tími fyrir hendi með undirbúninginn undir 1000 ára hátíð Alþingis, og búið reyndar að fastákveða hann. Og sá undirbúningur verður altaf af handahófi, meðan ekki er úr því skorið, hvort hann skuli gerður vegna hátíðahaldsins eins eða þingflutnings jafnframt.

Hæstv. forsrh. (JM) taldi það meðal annars mikilvægan galla, að hjer er gert ráð fyrir atkvgr. í sambandi við landskjörið, þar sem aðeins kjósa 35 ára kjósendur, og áleit hann, að með því yrði ekki náð til yngri kynslóðarinnar. En í till. er gert ráð fyrir, að atkvgr. fari fram eftir nýjustu kjörskrám, sem notaðar eru við óhlutbundnar kosningar. Geri jeg því ráð fyrir, að ná megi til allra kjósenda með því móti. Og af því að landskjör fer fram á þeim tíma árs, sem veðurblíðastur er, og vænta má, að áhugi verði mikill fyrir atkvæðagreiðslunni, þá verður ekkert tækifæri betra en landskjörsdagur til að safna kjósendum saman, og síst verður það betra við venjulegar kjördæmakosningar að hausti, þegar veður eru orðin stopul. Hæstv. forsrh. (JM) hjelt því fram, að sú hugmynd, að hafa stjórnardeild starfandi um þingtímann á Þingvöllum, væri ekki framkvæmanleg og að ráðherrarnir gætu ekki horfið burt úr Rvík meðan þingið stæði yfir. Jeg get nú ekki gert mikið úr þessari viðbáru, því að ráðherrarnir væru þó harla nærri bænum, þótt á þingi sætu, og gætu komið við og við til Reykjavíkur, jafnvel daglega, ef þörf krefði. Hinsvegar mundu skrifstofustjórar oftast geta annast störf þeirra, eins og líka hefir tíðkast í fjarveru ráðherra oftsinnis.

Jeg vil minna aftur á það, sem jeg tók fram í framsöguræðu minni, að um langt árabil var stjórnarráð Íslands í öðru landi, og mætti þá fulltrúi ráðh. á þingi. Sama eða lík tilhögun gæti gilt enn, ef ráðh. forfallaðist. Dæmi eru líka til þess, að undanfarin ár hefir stjórnarráðið stundum verið ráðherralaust, meðan þeir hafa verið á ferðalögum. Get jeg því ekki gert mikið úr þessari mótbáru hæstv. forsrh.

Hitt er aftur á móti veigameiri mótbára hjá hæstv. forsrh., að hjer er ekki gert ráð fyrir því, að till. verði samþ. nema í annari deild þingsins. Úr þessu hefði mátt bæta, hefði ekki verið liðið svo langt á þingtímann, með því að vísa till. til nefndar og síðan með brtt. um Alþingi í stað neðri deild vísa henni áfram, eftir að hún hefði verið búin að ganga gegnum þessa deild. En þar sem ekki voru miklar líkur fyrir framkvæmdum í þessu máli í bili, virtist mjer, að rjettilega mætti leita álits annarar deildarinnar um þetta mál, hvort hún væri því hlynt eða ekki, og önnurhvor deildin hlaut að hefja málið. En þótt svo færi, að till. yrði samþ. og kæmist ekki lengra, sem tímaskorts vegna líka er bersýnilegt, þá er stjórnin sjálfráð um það, hvort hún sinnir till. eða ekki. Væri hún því mótfallin, yrði vitanlega ekkert úr framkvæmdunum. Með þessu hefi jeg í rauninni líka svarað þeirri mótbáru hæstv. ráðh., að stjórnin og þingið væri of freklega bundin, ef till. yrði samþ. við þessa umr. og Ed. fengi ekki tækifæri til þess að taka hana til meðferðar.

Um þá mótbáru hæstv. forsrh., að allar kostnaðaráætlanir vantaði um framkvæmdir þingflutnings, er það að segja, að svo hlýtur altaf að vera í upphafi, þegar vakið er máls á einhverju nýju fjárþurfafyrirtæki. En að því er snertir ágiskanir hans um kostnaðinn við þingflutning og byggingar eystra, vil jeg taka það fram, að augsýnilega er hægt að halda þing á Þingvöllum að sumri til, þótt þar væru ekki aðrar byggingar en sæmilegt, einfalt, en rúmgott timburhús. Gæti það nægt til bráðabirgða. Og auk heldur ætti að vera kleift að halda þar sumarþing með þeim útbúnaði, sem þar var til forna. En vitanlega leggur enginn slíkt til nú á tímum. Hitt er óþarft, að gera grýlu úr þessum erfiðleikum.

Hæstv. forsrh. (JM) ætlaði, að þinghús eins og það, sem nú er notað, myndi kosta ½ miljón kr. Jeg hafði einmitt áætlað þinghúsbygginguna ½ milj. í framsöguræðu minni, og benti um leið á það, að núverandi þinghús mætti þá nægja fyrir háskólabyggingu. En jeg vil minna á það, að í nál. Þingvallanefndarinnar er gert ráð fyrir því, að um milj. kr. fari í minni háttar mannvirki á Þingvöllum vegna hátíðahaldsins 1930, en þau gætu sum fallið niður með öllu að sinni, ef þinghús yrði þar reist. Það verður aldrei siglt fram hjá því, að mikið fje verði notað til undirbúnings hátíðahöldunum á Þingvöllum 1930. En þess ber að gæta, að notabest verður það — og kostnaðarminst — ef slegið er saman hvorutveggja, undirbúningi þinghaldsins og hátíðarinnar. Með því móti verður fjenu varið til þess, sem varanlegt verður og lengi notast, en ef hátíðin ein er höfð fyrir augum, þá verður um stundarprýði og augabragðseyðslu fjárins að ræða.

Jeg vil svo ekki tefja tímann frekar við að svara þessum hóglegu og ljettvægu mótbárum hæstv. ráðh. Jeg býst við, að fleiri óski að taka til máls.