12.05.1926
Efri deild: 73. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í D-deild Alþingistíðinda. (3113)
119. mál, launakjör bæjarfógeta og lögreglustjóra í Reykjavík
Flm. (Jónas Jónsson):
Það er ekki hægt að segja, að á þessu þingi, sem nú á að fara að slíta, hafi verið eins mikill sparnaðartónn eins og stundum endranær. Man jeg ekki til, að fram hafi komið neinar kröfur um að leggja niður embætti, nema brtt. mín um 40–50 þús. kr. sparnað í Khöfn, og stendur það eflaust í sambandi við það, að fjárhagurinn er nú betri en flest undanfarin ár. Hjer er ekki heldur farið fram á að leggja neitt embætti niður, en menn ættu að vera sammála um það, þótt fjárhagurinn sje nokkru betri en stundum hefir verið, að hann er þó ekki svo góður, að ástæða sje til að hafa tvö embætti í landinu mun betur launuð en öll önnur sambærileg.
En það hefir vakið nokkra eftirtekt í landinu, hve háttað er um launakjör þeirra tveggja starfsmanna ríkisins, er um ræðir í þáltill. minni. Hefir til skamms tíma verið álitið, að þeir hefðu manna hæst laun. — Aftur á móti vita menn það af vissum atvikum, að stundum eru laun annars þessa starfsmanns mjög lág. Er það leitt af upphæð þeirri, sem hann á sum árin að greiða í tekjuskatt. Þar sem einmitt þessi maður á sæti hjer á þingi, geri jeg ráð fyrir, að hann geti útskýrt þetta, ásamt hæstv. forsrh. (JM), sem hefir átt þátt í að smíða þessi embætti og veitt þau.
Það, sem hjer er farið fram á, er að hæstv. landsstjórn leggi fyrir næsta þing frv. til laga um að samræma launakjör þessara tveggja embættismanna launum annara hliðstæðra starfsmanna, og eru tilnefndir þeir menn, sem ekki eru af lakari endanum, þar sem eru dómarar í hæstarjetti. Ætti undirdómara og lögreglustjóra að vera boðleg þau laun, sem þeir menn verða að sætta sig við. Jafnframt er gert ráð fyrir því, að ekki óverulegar aukatekjur, sem þessir menn hafa, falli til ríkissjóðs. — Jeg minnist þess, að stundum hefir verið rætt um, hvort húsameistari mætti hafa aukatekjur af störfum sínum í almenningsþágu. Jeg man ekki, hvort lagt hefir verið blátt bann við því, en það er víst, að þær eru mjög litlar.
Jeg held, að menn hafi af því útsvari og þeim tekjuskatti, sem þessir menn hafa stundum haft, dregið þá ályktun, að annar þeirra, bæjarfógetinn, mundi hafa nálægt 25 þús. kr. árslaunum, en lögreglustjóri nálægt 40 þús. Þessi laun eru í algerðu ósamræmi við kjör allra annara opinberra sýslunarmanna. Jeg áliti sýnu nær, að hæstv. forsrh. (JM) hefði 25 eða 40 þús. kr. árslaun, ef einhver á að hafa þau. Fæ jeg ekki sjeð neitt, sem bendir á það, að þessir tveir embættismenn eigi kröfur til hærri launa en allir aðrir. Vil jeg í þessu sambandi minna hv. þd. á, að hjer hefir verið deilt um það fyrir skömmu, hvort rjettmætt væri að veita tveim af helstu vísindamönnum vorum, sem annar er prófessor, en hinn hefir nú tekið við annari stöðu, 2000 kr. uppbót á 7000 kr. laun. Held jeg, að það sje rjett munað hjá mjer, að hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) greiddi atkv. á móti þessum hækkunum. Hefir hann eflaust gert það með þeirri sannfæringu, að þektustu vísindamenn vorir þyrftu ekki á að halda 9–10 þús. kr. árslaunum. Geri jeg því ráð fyrir, að honum þyki það ofraun af þjóðinni að launa hans starf svo hátt, þar sem það krefur engan veginn meiri undirbúnings nje meiri þekkingar heldur en prófessorsembættin, nema síður sje. — Geri jeg því ráð fyrir, að engin deila verði um það í hv. deild, að laun þessara manna sjeu í engu samræmi við það, sem hjer tíðkast.
Þá er það, hvaða form eigi að nota til þess að spara þetta. Um það er ekki talað til till., en jeg geri ráð fyrir, að jafnúrræðagóður maður og hæstv. forsrh. (JM) sjái fram úr því.
Jeg vil geta þess, að í greinarg. till. er einskonar prentvilla, þar sem sagt er, að útsvar bæjarfóg. hafi verið 150 kr., en á að vera tekjuskattur. Hann var mjög nálægt þeirri upphæð í fyrra, og bendir það á mjög lágar tekjur, mun minni en þær, sem t. d. hæstarjettardómarar hafa. En það er einkennilegt, að útsvar á sama manni er þá 2300 kr. Þetta er í sjálfu sjer hreinasta ráðgáta. Ef tekjuskatturinn er rjett á lagður, hlýtur útsvarið að vera stórkostlega ranglátt. En ef útsvarið er rjett á lagt, hefir bæjarfógeti álíka tekjur og þeir bankastjórar Íslandsbanka, sem fá 25 þús. kr. á ári. Í þessu liggur áreiðanlega einhver mótsögn, sem hefir vakið nokkra eftirtekt í bænum. Það er nú mitt álit, að lági tekjuskatturinn stafi af því, að bæjarfógeti hafi sum ár óvenjulega lágar tekjur, því að fyrirfram er ekki hægt að gera ráð fyrir, að svo hátt settur embættismaður gefi rangt eða villandi tekjuframtal. En þá virðist svo, sem honum hafi verið gert rangt til með útsvarinu, enda þótt ekki hafi heyrst, að hann hafi kært yfir því.
Jeg álít, að það sje töluverð þörf að koma nýju skipulagi á þessi störf, og vona jeg, að þessar umræður í þinglokin megi verða til þess að vekja eftirtekt manna og umhugsun um þetta. Nú langar mig til að spyrja hæstv. forsrh. (JM), sem með svo miklum sparnaði skamtaði hæstarjettardómurunum, hvernig standi á því, að þessum tveim mönnum hafa verið fengin svo afarhá laun. Býst jeg við, að fram komi ýmsar upplýsingar, bæði frá hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) og hæstv. forsrh. (JM).