08.04.1926
Sameinað þing: 4. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (3132)

73. mál, kröfur til trúnaðarmanna Íslands erlendis

Flm. (Jónas Jónsson):

Sinn er siður í landi hverju. Til eru þau lönd, er lengi hafa notið fullkomins sjálfstæðis, þar sem aðvörun sú til landsstjórnar Íslands, sem felst í þessari tillögu, mundi vera algerlega óþörf. Í Rómaborg gerðu lögin ekki ráð fyrir tiltekinni hegningu fyrir móðurmorð. Það var af því, að á þeim tíma álitu Rómverjar óhugsandi, að nokkur sonur eða dóttir mundi vilja valda dauða móður sinnar.

Í landi, sem öldum saman hefir notið fullkomins sjálfstæðis, eru það óskrifuð lög, að þeir, sem þjóðin velur fyrir trúnaðarmenn í öðrum löndum, gera til sjálfra sín hörðustu kröfur um alt, er lýtur að hegðun og framkomu. Þeir vita, að sú þjóð, sem þeir eru fulltrúar fyrir, er fyrst og fremst metin eftir framkomu og hegðun þeirra í skiftum við aðrar þjóðir. Trúnaðarmaður landsins er, meðan hann gegnir því starfi, ímynd sinnar þjóðar á þeim stað, þar sem hann dvelur.

Á Íslandi getur engan furðað, þótt Alþingi geri að umtalsefni, hvaða kröfur þjóðin eigi að gera til trúnaðarmanna sinna erlendis. Sjálfstæði landsins er ungt, og á undan gengin löng kúgunaröld. Merki niðurlægingaraldanna koma, eins og eðlilegt er, margoft fram í meðferð opinberra mála. Minsta ríkið í heiminum er nú á þessum árum að feta sig áleiðis að fyrsta áfanganum, fullkomnu sjálfstæði, endurfæðingu þjóðveldistímans forna.

Engin landsstjórn getur tekið upp þykkju við borgara landsins eða Alþingi, þó að aðvarandi raddir heyrist í þessu efni, jafnvel þó að engin sjerstök tilefni hefðu gefist, sem bentu á bráða yfirvofandi hættu. Raunin hefir líka orðið sú, að úr nokkrum kjördæmum hafa Alþingi nú í vetur borist áskoranir um að vanda valið á trúnaðarmönnum landsins erlendis. Þessar áskoranir hafa komið jöfnum höndum úr kjördæmum, sem við síðustu kosningar hafa hallast að íhaldsstefnunni, t. d. Vestur-Húnavatnssýslu og Vestur- Skaftafellssýslu, eins og frá kjósendum, sem þá fylgdu stefnu framsóknarmanna, svo sem Árnesingar og Mýramenn. Þetta er gleðilegur vottur þess, að borgarar landsins finna nú, a. m. k. allvíða á landinu, til þess, að heiður landsins á að vera hafinn yfir átök flokkanna um dægurmálin.

Á flestum þeim þingmálafundum, sem tóku þetta mál til meðferðar nú í vetur, voru kjósendur nálega eða alveg sammála um að gera strangar kröfur til trúnaðarmanna landsins, alveg jafnstrangar og aðrar menningarþjóðir. En í einu þorpi hjer nærlendis, í Borgarnesi, kom það sorglega atvik fyrir, að þrír langskólagengnir menn, presturinn, læknirinn og sýslumaðurinn, neituðu að gera þessa kröfu. Þeir vörðu með hugprýði, sem hefði hæft betra máli, lengi nætur þann málstað, að þjóðin ætti ekki að gera þessa sjálfsögðu kröfu um hegðun og siðferði til trúnaðarmanna landsins erlendis.

Í landi, sem lengi hefði verið frjálst, mundi ókleift að finna nokkurn sæmilega mentaðan mann, sem þyrði að láta það koma fram opinberlega, að hann virti að vettugi sæmd lands síns. En einmitt af því, að hjer hafa verið misstigin spor, og til eru borgarar, sem þola sársaukalaust sameiginlegan vanheiður allra Íslendinga, er mikil nauðsyn fyrir Alþingi að marka glögga og rjetta stefnu í málinu, til leiðbeiningar í framtíðinni.

Jeg geri hiklaust ráð fyrir, að hver einasti þingmaður á Alþingi telji skyldu sína að greiða þessari tillögu jáyrði nú í dag.

Jeg hefi gert mitt ítrasta til, að krafa þessi yrði ekki skoðuð sem sjereign nokkurs Íslendings eða nokkurs flokks, heldur að allir Íslendingar og allir flokkar geti hjer eftir staðið sameinaðir um að gæta sem best sæmdar landsins í skiftum við aðrar þjóðir. Og skyldi svo fara, mót von minni, að einhverjir af fulltrúum þjóðarinnar sjeu enn óvissir um, hvaða frumkröfur siðuð þjóð gerir um sæmd sína, þá fer þeim ekki að veita af að endurbæta þjóðmálauppeldi sitt, eða fela öðrum færari mönnum umboð sitt.

Íslenska þjóðin er ekki enn komin lengra á sjálfstjórnarbrautinni en það, að hún hefir með samningi falið annari þjóð að fara með málefni sín utanlands um nokkurt árabil. Sú skipun mála getur varla staðið til lengdar. Engin þjóð hefir nokkurn tíma frá upphafi vega haft gott af að fela annari þjóð að ráða fyrir sjer. Og slík forsjón erlendra manna á áreiðanlega ekki vel við skap dugandi manna í nokkru landi. Saga Norðurlandaþjóðanna er talandi vottur í þessu efni. Aldrei hafa tvær eða fleiri af þessum skyldu þjóðum verið spyrtar saman undir sameiginleg yfirráð, án þess að það sambýli hafi orðið harmabrauð fyrir þá aðiljana, sem veikari voru. Því meiri erlend forsjá, því meiri innlend óhamingja og niðurlæging. Engin þjóð hefir lært þetta betur af reynslu en Íslendingar. Saga landsins er óslitinn vitnisburður um hörmuleik erlendrar forsjár.

Þegar þjóðin er orðin fullkomlega sjálfstæð, verður hún að taka utanríkismálin í sínar hendur. Það má gera með tvennu móti. Annaðhvort að hafa í þjónustu landsins allmarga menn, sem gera meðferð utanríkismálanna að æfistarfi. Hin leiðin er sú, að þjóðin vandi svo uppeldi borgaranna, að jafnan sje völ á hæfum mönnum, sem geti farið erfiðar sendiferðir fyrir landið sitt, og horfið svo aftur að starfi heima fyrir, þegar erindi er lokið. Ríkar og stórar þjóðir fara aðallega fyrri leiðina. En íslenska ríkinu verður sú leið of kostnaðarsöm. Þar að auki höfum við gamla, góða reynslu frá fornöld um marga menn, sem gátu og alveg án sjerstaks undirbúnings komið fram þjóð sinni til sæmdar með erlendum tignarmönnum. En það, sem einkendi þessa menn fyrst og fremst, var það, að þeir vissu um gildi sitt og höfðu fullkomið vald yfir sjálfum sjer.

Allir, sem hafa lesið Íslendingasögur, muna eftir fjölmörgum dæmum um Íslendinga, sem umgengust erlenda stjórnmálamenn, sjer sjálfum og landinu til sæmdar. Jeg vil aðeins minnast á eitt dæmið, Halldór Snorrason og Harald harðráða. Annar er bóndi, hinn er konungur. Annar er yfirmaður, hinn er undirmaður. Konungurinn er einn hinn skarpvitrasti maður, sem lifað hefir á Norðurlöndum. En bóndasonurinn frá Snæfellsnesi heldur sínum hlut, undir margbreytilegum kringumstæðum í langri samveru. Hvað brúaði yfir mun tignar, auðs og valda? Hvað gerði Harald og Halldór að jafningjum, þrátt fyrir aðstöðumuninn? Það var persónugildið. Bóndinn kunni tök á mönnum og málefnum til jafns við konunginn. Þess vegna hjelt hann hlut sínum og heiðri jafnan er á reyndi.

Jeg vona fastlega, að sú kynslóð, sem nú lifir, muni sjá landið frjálst aftur. En eigi það að verða, og einkum ef það á að haldast, verður þjóðin að ala sig sjálfa upp, vitandi vits, hvert hún stefnir. Hún þarf að geta staðið á eigin fótum. Hún þarf að eiga marga borgara á hverjum tíma, sem geta haldið hlut sínum og landsins móti voldugum arfþegum Haralds harðráða.

Á söguöldinni virðast goðarnir, þ. e. trúnaðarmenn þjóðarinnar, hafa átt auðvelt að halda uppi lögum og rjetti í félagsmálum. Þeir gættu trúlega almennra hagsmuna í skiftum við íslenska og norska fjesýslumenn. Slíka menn þarf þjóðin aftur að eignast. Meðan þeirra naut við, var hún sterk og frjáls. Án þeirra getur hún ekki verið frjáls. Og þessi siðferðilega karlmenska þarf fyrst og fremst að koma fram í skiftunum við aðrar þjóðir.

Jeg hygg, að sá uggur um framkomu íslenskra valdamanna gagnvart útlendingum, sem kemur fram í áðurnefndum tillögum víðsvegar að af landinu, sje rjettmætur í sambandi við ýmsa þætti í skiftum íslenskra trúnaðarmanna við erlent vald. Það mun ekki dæmalaust um trúnaðarmenn landsins, sem gæta eiga áfengisvarnanna, að þeir sjeu fyrstir út í erlend skip til þess að brjóta lög landsins, þó að það sje embættisskyldan að hegna þeim, sem brjóta áfengislöggjöfina. Fyrir skömmu var erlendur skipstjóri tekinn fyrir og dæmdur í smásekt fyrir brot á sóttvarnalögunum. En skipstjórinn segir svo frá, að þegar dómarinn, alkunnur drykkju- og ólánsgarmur, var búinn að kveða upp dóminn, þá bauð hann sökudólgi sínum, að þeir skyldu drekka saman! Síðan er þessi tegund af dómsstarfi nefnd stauparjettur. Þriðja dæmið er það, þegar útlendur atvinnurekandi liggur undir sannaðri sök um að hafa brotið lög landsins stórkostlega sjer í hag, þá kemur hver trúnaðarmaður landsins af öðrum á vettvang, drepa titlinga framan í hinn auðuga, erlenda sökudólg og slíðra sverð rjettvísinnar. Að vonum vekur sú framkoma ekki virðingu erlendra manna, jafnvel ekki afbrotamanna, heldur þvert á móti óblandaða fyrirlitningu, fyrst á trúnaðarmönnum landsins og þar næst á þjóðinni, sem trúir slíkum mönnum fyrir velferð sinni. Enda er haft eftir einum erlendum sökudólg, er hann þóttist öruggur að sleppa frá hegningu: Nú eru öll íslensk yfirvöld búin að koma til mín, nema kóngurinn!

Langoftast er það ofdrykkjan, sem gerir Íslendinga að mestum smámennum í framkomu gagnvart útlendingum, og ofdrykkjueðlið magnast oft við burtförina. Menn, sem halda sjer nokkurn veginn í skefjum hjer heima, halda, að enginn þekki þá erlendis. Fyrir nokkrum árum gerðust tvö vanvirðandi atvik í sambandi við ofdrykkju íslensks trúnaðarmanns, sem staddur var í Kaupmannahöfn, og er þó fátt eitt talið af þeim misfellum. Í annað skiftið safnaði hann saman stórum skara af þjónum gistihússins, þar sem hann bjó, og gerði þá ölóða með sjer. Þetta varð að sjálfsögðu til þess, að Íslendingurinn var rekinn burt úr gistihúsinu þegar í stað. Um sama leyti hafði hinn sami ísl. valdamaður lagt í vana sinn að koma að staðaldri til drykkju í afhrakskjallara einn. Söngflokkur kjallarans heiðraði minningu landsins með því að spila „Guð vors lands“, þegar hinn merki Íslendingur kom inn í knæpuna.

Síðan kom annar íslenskur trúnaðarmaður á veitingastað undir beru lofti í Khöfn, settist þar óboðinn hjá miðaldra hjónum, nefndi nafn sitt og trúnaðarstöðu í þágu almennings á Íslandi og byrjaði að láta undrun sína í ljós yfir smekkleysi mannsins að hafa getað gift sig svo herfilega ófríðri konu!

Jeg hygg, að þó leitað sje vandlega hjá frændþjóðum okkar, þá komi ekki slík brot á smekk og velsæmi fyrir um þekta menn í trúnaðarstöðum. Og ef þjóðin lokar augunum fyrir þessum ávirðingum, þá stækkar meinsemdin. Þá hlýtur þjóðin að glata frelsi sínu og sjálfstæði í annað sinn.

Allar ungar þjóðir, sem eru að endurvinna frelsi sitt, hafa vakandi auga á þessu vandaatriði: Trúnaðarmönnum landsins í öðrum löndum.

Jeg vil minna á tvö dæmi. Þegar Bandaríkin háðu frelsisbaráttu sína, sendu þau sinn vitrasta og frægasta mann, Benjamín Franklín, til Parísar. Bandamenn áttu við hið mesta ofurefli að etja. Þeir voru fámennir og fátækir á móts við Breta. En Frakkar voru þeim velviljaðir. Þaðan var helst hjálpar að vænta. Þegar Franklín hóf för sína til Frakklands, var hann öldungur, hvítur fyrir hærum, kominn yfir sjötugt. En frægð hans var löngu komin yfir hafið. Bestu menn Frakka dáðust að prentaranum, sem jafnframt var einhver frægasti vísindamaður, siðspekingur og stjórnmálamaður sinnar aldar. Frægð hans og mannkostir voru honum eina veganestið. Og með þeim var hann bjargvættur lands síns, útvegaði þjóð sinni vopn, hermenn, skip, bandalag og að lokum frið og frelsi.

Meira en hundrað árum síðar var önnur lítil þjóð að endurheimta sjálfst. sitt. Það voru Norðmenn. Þrjú fyrstu árin, sem Noregur var alfrjáls síðan í fornöld, var einhver frægasti maður landsins, Friðþjófur Nansen, trúnaðarmaður Norðmanna í London. Þar var norsku þjóðinni á þeim árum mest þörf hins ágætasta fulltrúa. Hvar sem Nansen fór fylgdi honum frægðin fyrir unnin hreystiverk. Hann hafði fyrstur manna komist yfir Grænlandsjökla. Hann hafði synt á eftir bátnum sínum um ísvök norður undir heimsskauti. Tilgangur þessara tveggja smáþjóða er bersýnilegur, er þær velja sína frægustu menn til að vera fulltrúar hjá höfuðþjóðum samtíðarinnar. Frægð slíkra manna bregður ljóma yfir það land eða þá þjóð, sem á slíka sonu. Heil þjóð lánar frægð eins af sonum sínum sjer til styrktar, ekki síst meðan verið er að grundvalla nýfengið frelsi.

Þjóðirnar njóta ennfremur góðra sona erlendis, þó að þeir fari ekki með umboð hennar. Einhver þektasti hagfræðingur Finnlendinga, prófessor Hannes Gebhard, sagði við mig í haust, að finska þjóðin ætti í fjármálaefnum mikið að þakka hlaupagarpinum Nurmi, sem er einskonar Napóleon meðal sinna samherja. Finnar tóku stórt lán í Bandaríkjunum í sumar. Og að sögn prófessorsins fengu þeir mun betri kosti um vexti og afföll, af því að Nurmi var þá nýbúinn að fara um Bandaríkin og sigra alla, sem við hann þreyttu leik. Af þessu má sjá, hvernig þjóðirnar gjalda og njóta barna sinna erlendis, eftir því sem verðleikar eru til.

Jeg hefi fyr vikið að því, að þjóðin sýnist vera hrædd um, að á hærri stöðum sje ekki nógu mikill skilningur á því, hversu velja beri trúnaðarmenn þjóðinni til handa erlendis.

Átakanlegt dæmi um það eru sendifarir Gunnars Egilssonar tvívegis. Fyrst er hann sendur til Spánar til að bjarga bannlögunum — einmitt þeim lögum, sem hann hafði manna mest óvirt meðan hann var ritstjóri andbanningablaðs hjer heima. Hann, sem opinberlega hafði kallað bannlögin „þrælalög“, var af stjórn landsins valinn til þess að bjarga þessum lögum. Slík tilnefning var einkar vel fallin til að vekja ótrú á sendiför og sendimanni heima fyrir, jafnvel líkast að verið væri að leika sjer með það mál, sem þó var einna viðkvæmast miklum meiri hluta þjóðarinnar. Þar var stjórnin ámælisverð, en ekki maðurinn, því að hún gaf honum samningsvaldið fyrir alþjóð manna. Síðan hefir verið haldið áfram á sömu braut. Sami maðurinn er af núverandi stjórn gerður að trúnaðarmanni suður í löndum. Kaupið alt að því helmingi hærra en hjá ræðismanni Norðmanna á næstu grösum. Samningur gerður til margra ára. Samt hefir þessi maður ekki getað staðið skil á opinberu fje, sem hann hafði handa á milli, þegar hann var fulltrúi í Ameríku. Slíkt fulltrúaval hlýtur að koma inn hjá þjóðinni megnustu ótrú á dómgreind þeirra manna, er velja svo gálauslega í vandasamar stöður. Enginn getur, svo að gagn eða sæmd sje að, verið trúnaðarmaður heillar þjóðar í öðru landi, nema hann njóti trausts og virðingar borgaranna í sínu landi.

Jeg hefi sýnt, að sjálfstæði Íslands í fornöld bygðist á borgaralegum þroska eða því, sem máske er best að nefna siðferðilega karlmensku hinnar ráðandi stjettar, sem ekki kom síst fram í hinum virðulegu skiftum Íslendinga við aðrar þjóðir. Hið langa líf þjóðveldisins forna var bein afleiðing af yfirburðum fornmanna um siðferðilega karlmensku. Annars leggja allar frjálsar þjóðir mestu stund á að hafa úrvalsmenn til starfanna út á við, og það þykir bera vott um dýpstu stjórnmálaspillingu, ef slík störf eru gerð að bitlingum handa skjólstæðingum hvers meiri hluta. Jeg hefi lauslega vikið að hinum kunna þjóðlesti Íslendinga, ofdrykkjunni. Sá ljóður er á ráði margra Íslendinga, að ofdrykkjulöngunin æsist, er þeir koma úr landi og á staði, þar sem þeir halda, að þeir sjeu óþektir. En þá er við búið, að vansinn verði mestur. En fari svo, að fulltrúi eða sendimaður lands drekki frá sjer ráð og rænu í öðru landi, þá verður niðurstaðan þveröfug við það, sem Bandaríkin og Noregur uppskáru af sendimensku Franklins og Nansens. Þeir lánuðu þjóðum sínum ljóma af frægð sinni. Ofdrykkjumaður í sendimannastjett lánar þjóð sinni skuggann af niðurlægingu sinni.

Ástæðan til, að stjórn velur gálauslega trúnaðarmenn til útlanda, er nálega ætíð hin sama: Stjórnmálavanþroski og pólitísk spilling. Stjórn þarf að hlaða undir einn eða annan gæðing flokksins og stingur að honum bita. Slíkt ráðlag kemur aldrei fyrir menn eins og Washington og Michelsen. Þeir velja Franklin og Nansen. Jón Sigurðsson sýnist meðal Íslendinga hafa verið frábær í því að velja sjer meðstarfsmenn eftir hæfileikum.

Hafi nú stjórn, til að halda sjer við völd, eða til að launa fylgi, valið trúnaðarmann erlendis, sem með breytni sinni brýtur flestar eða allar frumreglur sinnar stjettar, þá á sú stjórn harðan dóm skilið. Myndist sú venja, að siðferðileg karlmenska sje fyrirlitin í skiftum við aðrar þjóðir, þá er frelsi landsins og sjálfstæði glatað, af því að þjóðin er gálaus, spilt og sjúk.

Nú hafa komið glöggar raddir utan af landsbygðinni til Alþingis um að vanda valið á trúnaðarmönnum erlendis. Þessar raddir eru, eins og jeg hefi sýnt, í fullu samræmi við reynslu þjóðarinnar, meðan hún var sjálfstæð, og skoðun og venju frjálsra samtíðarþjóða. Það, sem nú liggur fyrir Alþingi, er að játa eða neita, annaðhvort að lýsa yfir, að það vilji taka upp erfðina frá frelsisöld þjóðarinnar, eða frá þeim öldum, þegar þjóðin var kúguð og beygð, þegar landið var fótaskinn og fjeþúfa erlends valds.

Jeg hefi nefnt þann eiginleika, sem trúnaðarmenn þjóða þurfa að hafa, siðferðilega karlmensku. Jeg hefi sýnt með gömlum og nýjum dæmum, að hættan í þessu efni er meiri en í fornöld. — „Stauparjettur“ var ekki dæmdur af samtíðarmönnum Haralds harðráða og Halldórs Snorrasonar.

Menn mega ekki halda, að vandinn mikli, að halda uppi sæmd landsins út á við, sje eingöngu á herðum ráðherra og sendimanna. Engin stjórn leyfir sjer að senda úr landi viðurkenda annmarkamenn, nema af því að hún treystir á siðferðilega bleyðimensku hjá borgurum sinnar eigin þjóðar, að þeir loki augunum, að þeir þegi, að þeir gleymi. Að lokum er svefninn orðinn svo fastur, að hver flokkur getur, án þess að nokkur hreyfi hönd eða fót, gert störfin við utanríkismálin að hentugum bitling handa þægum, atvinnulausum flokksbræðrum.

Jeg hefi heyrt suma menn halda því fram, í nafni mannúðar og kristilegs kærleika, að ekki mætti tala um afglöp trúnaðarmanna landsins erlendis, jafnvel þótt mikið hefði verið af sjer brotið, því að það særði tilfinningar þeirra sjálfra, svo og vini þeirra og vandamenn.

Sömu röksemd mætti færa fram til varnar og afsökunar öllum þeim, sem er hegnt eftir fyrirmælum borgaralegra laga. Þeir hafa líka tilfinningar. Vandamenn þeirra finna líka til. Samt er ekki hjá siðuðum mönnum aðhald laganna afnumið, nje settur „stauparjettur“, þar sem dómari og brotamaður grafa aðstöðumuninn í áfengisbylgjum.

Þeir menn, sem eru fúsastir að gefa upp skuldir, þar sem heill og sæmd alþjóðar liggur við, eru venjulega tregir að gefa úr eigin sjóði, enda er hjer ruglað rökum. Hver einstaklingur getur í persónulegum skiftum sýnt föllnum manni samúð og hlýleik. En þegar einstakir menn berjast með hnúum og hnefum á móti því, að trúnaðarmenn landsins sjeu skyldir að koma sómasamlega fram fyrir landsins hönd utanlands, þá eru þessir mýldu vinir kristilegs kærleika að dreifa hinum hættulegustu sóttkveikjum pólitískrar spillingar um allan þjóðlíkamann. Þeir eru að eyðileggja þjóðfjelagið. Þessi uppgjöf saka fyrir hönd almennings er frá borgaranna hálfu ekkert annað en sama vöntunin á siðferðilegum karlmannskjarki, sem kemur fram hjá löggæslumanni, er fer út í skip í nafni laganna, til að innsigla áfengi, en gleymir því og sest í stað þess að ólöglegri drykkju.

Jeg geri, eins og jeg hefi tekið fram, hiklaust ráð fyrir, að allir þm. samþykki þessa tillögu. En ef svo ólíklega skyldi fara, að einhver þm. sæi ástæðu til að hnekkja henni, annaðhvort með mótatkvæði, dagskrá eða þögn, þá er sýnilegt, að þeir kjósendur úti um land, sem sent hafa Alþingi áskoranir, er fara í sömu átt, hafa haft ástæðu til að bera í brjósti kvíðboga fyrir framtíð Íslendinga sem sjálfstæðrar þjóðar. Öll mótstaða gegn þessari tillögu, opinber eða í leyni, getur ekki stafað af öðru en því, að til sjeu Íslendingar, sem vilji halda opnum möguleikum til að láta siðgæði „stauparjettarins“ eiga í framtíðinni örugg gróðrarskilyrði í meðferð utanríkismálanna.

Af því að jeg álít, að stefna þjóðarinnar sje sú að ná aftur fullu frelsi og að taka aftur virðulegt sæti meðal menningarþjóða heimsins, vil jeg vona, að hvert spor Alþingis, og hvers einstaks þingmanns, sje stigið í átt að þessu takmarki. Jeg vil, að þjóðin fái þá ánægju að sjá þess vott í verki, um þetta þýðingarmikla mál. Jeg vil þess vegna beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann láti að loknum umr. fara fram atkvgr. með nafnakalli.