05.05.1926
Efri deild: 67. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í D-deild Alþingistíðinda. (3168)
100. mál, málshöfðun gegn Sigurði Þórðarsyni
Flm. (Jónas Jónsson):
Jeg er ánægður yfir því að hafa gefið hv. 5. landsk. (GunnÓ) tækifæri til að sýna þingmannshæfileika sína með þessari einkennilegu dagskrá, um leið og salir Alþingis lokast endanlega bak við hann. En þar sem með henni er játað, að deildin geti ekki sloppið úr þessum vanda, nema með því að skjóta sjer undir ranga lögskýringu, og þar sem búast má við, að hv. 5. landsk. (GunnÓ) hafi fylgi meiri hl. til að koma málinu inn á þennan skakka grundvöll, þá óska jeg eftir, að málið verði tekið út af dagskrá, svo að tækifæri gefist til að breyta formi tillögunnar, svo að hún verði meir að skapi hæstv. landsstjórn og fylgifiskum hennar. Deildinni er þá jafnframt gert hægara fyrir að afgreiða málið sómasamlega. Jeg vona, að við getum orðið ásáttir um þann grundvöll, sem forðar hv. 5. landsk. (GunnÓ) frá að komast eins langt niður á við og hann stefnir nú, þar sem hann vill láta deildina löghelga föðurlandssvik, og með ósæmilegu formi á þingskjali brjóta helgustu siðareglur Alþingis og allra þinga hjá mentuðum þjóðum. En ef hæstv. forseti vill stefna sjer og sínum flokki út í varanlega hneisu, þá er það á þeirra ábyrgð. Og jeg ann hv. þm. (GunnÓ) vel sæmdarinnar af því að bera þessa dagskrá fram, þó hann hafi ekki búið hana til. Jeg óska honum að vísu engrar ógæfu, en ef hann vill niðri á grafarbakkanum breiða faðm sinn móti landráðastefnu, þá er honum það velkomið mín vegna.