28.04.1926
Efri deild: 61. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í D-deild Alþingistíðinda. (3194)
108. mál, svifting ofdrykkjumanna lögræði og fjárræði
Forsætisráðherra (JM):
Jeg held, að óhætt sje að fullyrða, að hv. flm. (JJ) hafi ekki athugað þetta mál vandlega. Það er talað um að svifta lögræði og fjárræði. Við eigum ný lög um þetta efni, þar sem ekki þekkist lögræði og fjárræði. Lögræði er tvennskonar, sjálfræði og fjárræði. Annars held jeg, að þessi tillaga sje óþörf. í 5. gr. þessara laga, sem jeg nefndi, er ákveðið, hvenær megi svifta menn fjárræði og sjálfræði. Þar er að vísu ekki talinn drykkjuskapur. Það var gert í frv. eins og það kom frá stjórnarinnar hendi, en var felt úr í meðferð málsins. Jeg hefi ekki athugað, hvar það var felt úr, en jeg held, að það hafi verið gert með þeirri athugasemd, að ekki þyrfti að hafa það ákvæði, því heimilt væri að gera þetta eftir kröfu frá sveitarstjórn. Þetta, sem hv. flm. vill fá fram, er því í lögunum sjálfum; a. m. k. væri meira en nóg að setja aftur inn orðið „drykkjuskapur“, þar sem það var í frv. frá stjórninni. Annan eða meiri undirbúning þarf ekki. Það hefir viðgengist, að sveitarstjórnir hafa fengið drykkjumenn svifta fjárforræði. Jeg skil því ekki, hvers vegna hv. flm. kemur fram með þessa till., nema ef það er af því, að honum þyki sveitarstjórnir ekki nota nægilega vald sitt í þessu efni. Að þær hafi þetta vald, er engum efa undirorpið.
Það er rjett hjá hv. flm., að hlíta verður úrskurði læknis, hvort svifta eigi mann fjárforræði, þó að við lögfræðingarnir sjeum ekki altaf ánægðir með það. En eins og jeg hefi tekið fram, þá eru til lög um þetta efni. Jeg held, að ákvæðin sjeu fullskýr, nema ef rjettara þætti að bæta inn í þessu eina orði, sem jeg mintist á. Annan undirbúning get jeg ekki sjeð að þurfi.