09.03.1926
Neðri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (320)
11. mál, raforkuvirki
Jakob Möller:
Jeg vil spyrja hv. þm. sem eru á móti brtt., hvort þeir vilji þá ekki til samræmis koma með brtt. við stjórnarskrána, því að það var talað um, að þrátt fyrir friðhelgi eignarrjettarins megi taka eignir af mönnum, ef almenningsheill krefur. Hjer gildir alveg hið sama, því það, sem varðar heill bæjar- eða sveitarfjelags, varðar að sjálfsögðu almenningsheill.