04.05.1926
Neðri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í D-deild Alþingistíðinda. (3216)

107. mál, mæling á siglingaleiðum

Hákon Kristófersson:

Jeg gleymdi að taka fram í sambandi við þessa till., að svo fremi að snúið verði að þessu verki, vil jeg benda á, að í till. þessari, sem nú liggur fyrir, er talað um rannsókn á siglingaleiðum meðfram norðurströnd Breiðafjarðar og um Gilsfjörð, í því skyni, að strandferðaskip geti hættulaust komið á nokkrar hafnir í Barðastrandarsýslu, frá Hagabót og inn að Króksfjarðarnesi, svo og að Salthólmavík, en í hinni till. er miðað við Flatey og Haga, og þá mætti það ekki gleymast, að það þyrfti jafnt að mæla upp leiðina frá Flatey og upp að Haga. Jeg hefi bent á það, að þegar skip kæmi vestan að, væri nauðsynlegt að mæla upp siglingaleiðina inn Breiðafjörð, sem mundi verða mjög fljótlegt, því að það þarf aðeins að miða leiðina, því að dýpið er nóg fyrir hvaða skip sem vera skal, og þó að það kanske hefði ekki mikla þýðingu, gæti jeg þó bent á nokkra menn þar vestra, sem eru sjerstaklega kunnugir þessari leið og gætu verið væntanlegum mælingamönnum til mikillar og góðrar aðstoðar, og vil jeg þar til nefna fyrstan Snæbjörn hreppstjóra í Hergilsey, sem er manna glegstur á þessu sviði.