04.05.1926
Neðri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í D-deild Alþingistíðinda. (3220)
107. mál, mæling á siglingaleiðum
Jón Auðunn Jónsson:
Úr því að farið er að tala um þingsályktanir, sem samþ. hafa verið endur fyrir löngu, er sjálfsagt að minna hæstv. atvrh. (MG) á þál. um að mæla upp innsiglinguna á Þaralátursfjörð. Þessu hefir orðið að fresta vegna fjárskorts, en jeg verð líka að taka undir það með hv. þm. Borgf. (PO), að það er ekki hægt að binda landhelgisgæsluskipið við slíkar mælingar. Það mun vera talsverður vandi að mæla þessar sjóleiðir og þurfa kunnáttu til og æfingu, og óvíst, að við höfum mönnum á að skipa til slíkrar vinnu. Jeg hygg, að það, sem hefir verið mælt hjer, hafi að mestu leyti verið mælt af dönsku sjóliðsforingjunum á „Islands Falk“ og svo á „Heimdalli“ í gamla daga. Jeg vildi óska þess, að þegar fært þætti, væri siglingaleiðin inn á Þaralátursfjörð mæld upp, því að það væri sjerstaklega hentugt fyrir fiskiflotann okkar. Reyndar eru Ísfirðingar svo kunnugir þar, að þeir fara þessa leið fyrirhafnarlaust. Það er mjög fiskisælt þar við ströndina, og því jafnaðarlegast mikið af skipum þar, en ef óveður skellur á snögglega, er ekkert annað að leita en á tvær hafnir, aðra litla, en aðra ótrygga.