04.05.1926
Neðri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í D-deild Alþingistíðinda. (3223)

107. mál, mæling á siglingaleiðum

Klemens Jónsson:

Úr því að farið er að tala um þessi mál, vil jeg leyfa mjer að rifja dálítið upp fyrir hv. þm. það, sem gerðist hjer á þinginu 1922. Þá kom fram í þinglok þingsályktunartillaga frá hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) um uppmælingu fyrir Hornströndum og kringum Þaralátursfjörð. Jafnframt kom önnur tillaga frá hv. 2. þm. Húnv. (ÞórJ), sem fór í þá átt að mæla siglingaleið frá Vatnsnesi og inn að Hvammstanga. Þessar till. voru teknar aftur, vegna þess að jeg, sem þá var atvrh., lýsti yfir því, að jeg mundi taka þær til greina, hvort sem þær yrðu samþ. eða ekki. Og það er eins nú, að það er sama, hvort slíkar till. verða samþ. eða ekki, aðeins ef hæstv. atvrh. (MG) vill lofa að taka málið til greina. En um leið komu fram ýmsar aðrar till., þar á meðal till. frá þáv. þm. Rang., um að mæla upp innsiglingu til Hallgeirseyjar, og úr því að farið er að minnast á þessi mál, og margir hafa borið fram óskir sínar í þeim efnum, þá vil jeg biðja hæstv. atvrh. (MG) að hafa Hallgeirsey á bak við eyrað líka. Annars vil jeg geta þess, að það er ekki nóg, að hv. þm. standi upp og biðji um, að þetta og þetta sje gert; þeir verða líka að veita viðkomandi ráðh. peninga til framkvæmdanna.

Það var þá leitað til flotastjórnarinnar dönsku og spurt, hvað ýmsar þessar rannsóknir myndu kosta, og þeir gerðu kostnaðaráætlun um þetta. Upphæðin var eitthvað 60 þús. kr., og var þó ekki talið kaup þeirra manna, sem flotamálastjórnin lofaði að leggja til, svo að ef hv. þm. er nokkur alvara með að koma þessum mælingum í framkvæmd, þá verða þeir að veita upphæðir til þess í fjárlögunum.

Nú stendur einmitt fyrir dyrum ein umr. um fjárlögin, og þá er okkur hægt, ef áhugi er fyrir því, að koma því fram, og tel jeg ver farið, ef það verður ekki gert. En jeg geri ekki ráð fyrir, að hægt verði að nota strandvarnarskipið mikið til þessa starfa. Jeg geri ráð fyrir, að það verði að hafa annað fyrir stafni; en eins og hv. þm. Borgf. (PO) tók fram, var uppmælingin við Skógarnes framkvæmd á mótorbát, og þykir mjer líklegt, að við Barðaströnd, Strandir og á Húnaflóa, megi vel framkvæma mælingarnar á mótorbátum. En það verður að gefa atvrh. heimild til að nota fje til þess, og álít jeg ekki rjett, um leið og farið er fram á afgreiðslu þessara mála, að heimila í þál. svo og svo mikið fje, sem atvrh. svo getur notað eftir eigin vild. Held jeg, að rjettast væri að koma með brtt. við fjárlögin. En ef hæstv. atvrh. (MG) treystir sjer til að verða við öllum þessum beiðnum, án þess að hafa fjárlagaheimild að baki sjer, þá hefi jeg auðvitað ekkert við því að segja.