04.05.1926
Neðri deild: 69. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í D-deild Alþingistíðinda. (3227)

107. mál, mæling á siglingaleiðum

Benedikt Sveinsson:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hæstv. atvrh. fyrir góðar undirtektir um mína málaleitun. Hann gaf bestu vonir um, að hann mundi á sumri komanda geta látið mæla upp Leirhöfn. Treysti jeg þar fullum efndum. Jeg er því sammála hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) um, að besta lausnin á þessu máli sje sú að vísa því til stjórnarinnar.