05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í D-deild Alþingistíðinda. (3241)
95. mál, lánveitingar úr Fiskveiðasjóði Íslands
Atvinnumálaráðherra (MG):
Þrátt fyrir orð hv. flm. (JAJ) held jeg því fram, að lán eins og þetta til Rvíkurhafnar falli undir reglugerð sjóðsins. Jeg sný ekki aftur með það, að hjer er aðeins að ræða um lánsupphæðina. Hún er hærri en núgildandi reglugerð heimilar, en því ákvæði má breyta hvenær sem er, eins og vaxtaupphæðinni hefir verið breytt. Við þetta er því ekkert varhugavert. Flm. (JAJ) sagði, að hjer væri lokuð höfn. Það er þó svo, að í vissum áttum geta skip ekki farið inn á höfnina til að leggjast. Er því mesta þörf á fleiri bryggjum til að eyða sjávargangi og gera skipin óhult á höfninni. Það er ekki hægt að segja, að höfnin sje trygg fyr en skip geta lagst þar í hvaða veðri sem er. Það er rjett, að hafnarnefnd býst við auknum tekjum, ef bryggjum er fjölgað, en það sýnir, að þörf er fyrir fleiri bryggjur. Það er þörf, sem þarf að uppfylla fyr eða síðar. Jeg hefi það eftir bæjarstjóranum á Akureyri, að þar sje sjerstök höfn fyrir fiskiskip, sem þurfi að stækka, og til þess eigi að nota þetta lán. Sje jeg enga ástæðu til að rengja þetta. Það er áreiðanlegt, að hafnarsjóður Akureyrar getur borgað þetta lán á 5 árum.
Jeg get ekkert sagt um þessi lán, sem von er á úr Norður-Ísafjarðarsýslu. Jeg geri ráð fyrir, að þau fái áheyrn. Verði samþ. till. hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) um að vísa málinu til stjórnarinnar, þá verður það á valdi hennar, hvernig fjenu er varið.