08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í D-deild Alþingistíðinda. (3255)

77. mál, vínsala ríkisins á Siglufirði

Sigurður Eggerz:

Jeg hygg, að þessi sjerstaða hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) til Siglufjarðar geti verið sprottin af því, að þessi bær er í hans kjördæmi. Jeg vil t. d. leyfa mjer að benda á Vestmannaeyjar. Það er bær, sem er alveg hliðstæður Siglufirði í þessu tilliti, eða t. d. Hafnarfjörður.

Jeg skil svo sem vel, að kaupstaðirnir vilja losna við vínsöluna, en þeir verða að beygja sig fyrir nauðsyninni.

Því hefir verið haldið fram, að gera mætti eina tilraun, um t. d. einn kaupstaðinn. En sú tilraun gæti orðið of dýr. Hún gæti gefið tilefni til, að samningnum yrði sagt upp.

Jeg tel þýðingarlaust að deila um þetta frekar, enda munu þeir reynast fáir, sem vilja breyta því, eða rjettara sagt treystast til að breyta því, sem jeg hefi gert í málinu.

Hæstv. forsrh. hefir bæði í fyrra og einnig við þessar umræður látið í ljós, að hann hefði ekkert að athuga við aðgerðir mínar í þessu máli, og er jeg honum þakklátur fyrir það.