08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í D-deild Alþingistíðinda. (3257)
77. mál, vínsala ríkisins á Siglufirði
Sigurður Eggerz:
Það er nú svo í þessum stjórnmálum, að það koma fyrir undarlegir hlutir. Þannig byrjar hv. 2. þm. S.-M. (IP) nú á eldhúsdegi gagnvart mjer, 2–3 árum eftir að jeg læt af stjórn. Hv. þm. (IP) talaði mikið um, að jeg hefði breytt stefnu minni í þessu máli í utanför minni. Þetta er ekki rjett. Það lá í hlutarins eðli, að jeg vildi gera alt, sem í mínu valdi stóð, til þess að takmarka vínsölu í landinu. Jeg hafði hugsað mjer, að það mætti komast af með einn útsölustað, en eftir að jeg hafði aflað mjer frekari upplýsinga, sá jeg, að þau takmörk voru of þröng. Þá var það, að jeg ákvað útsölustaði í öllum kaupstöðum landsins, en jeg skal játa, að jeg var ekki að reikna út landfræðilega legu þessara staða. Hv. þm. (IP) sagði, að jeg gæti aldrei sannað, að ekki hefði mátt sleppa kaupstöðunum. Þetta er alveg satt, en hitt getur hv. 2. þm. S.-M. (IP) ekki heldur sannað, að það hafi ekki verið nauðsynlegt að taka einmitt kaupstaðina. Það er einmitt vegna þess, að hv. þm. (IP) veit, að jeg get aldrei sannað þetta, að hann er svo drengilegur að reyna á mjög óviðeigandi hátt að gera mig tortryggilegan, með því að gefa í skyn, að danskir vínkaupmenn hefðu haft áhrif á gerðir mínar! (IP: Jeg sagði ekki annað en það, að þeir hefðu haft hagsmuna að gæta). Jeg veit ekki, hvort hv. þm. (IP) þorir að standa við þessar dylgjur. Ef hann gerir það, skal jeg koma með slíka yfirlýsingu, að hv. þm. (IP) þurfi að fara í mál við mig. Jeg mun lýsa hann hinn svartasta ósannindamann, og jafnvel nota enn sterkari orð. Það er ósvífni á svo háu stigi, að þess eru einsdæmi, að voga sjer að drótta því að einum stjórnmálamanni, að hann láti danska vínkaupmenn hafa áhrif á sig í stórmálum þjóðarinnar.
Hv. þm. (IP) talaði um, að engin krafa hefði komið frá Spánverjum um útsölustaðina. Eftir að búið var að gera ráðstafanir hjer á Alþingi, var auðvitað, að jeg fór ekki að hefja nýjan samning við Spánverja um þetta, eða spyrja þá um það. Ef jeg hefði gert það, hefði alt málið verið tekið upp að nýju. Hv. þm. (IP) gerir sjer ekki ljóst, hvað það er erfitt að koma á slíkum milliríkjasamningum. T. d. átti sambandsþjóðin, Danir, mjög erfitt með að ná samskonar samningum fyrir sig og Færeyinga. Ríkissjóðurinn danski verður svo að greiða Færeyingum mismuninn á því og hinum bestu kjörum, en það er allmikið fje. Þetta bendi jeg á, til þess að sýna, hvað mikið er í það varið að ná góðum kjörum. Þegar búið var að gera samning, varð að taka afleiðingunum af því.
Jeg sje, að hæstv. forseti (HSteins) vill ekki leyfa mjer að tala lengur. Jeg hefði annars kunnað því betur, að hæstv. forseti hefði, þegar jeg hefi orðið fyrir svo hörðum árásum, leyft mjer að tala svolítið lengur.
Hv. þm. (IP) fór að tala um landskjörið. Þarna átti að búa til kjölfestu fyrir hans lista, svo að alt er þetta eintóm kosningabrella. En er það nú heppilegt fyrir þá menn, sem trúa á bannið og vilja leiða bannmálið fram til sigurs, að óvirða þá menn, sem vitanlegt er að hafa ærlega staðið með því? Bendir ekki sú pólitík á, að hv. þm. (IP) sje alveg sama um málið, en vilji búa til úr því kosningabrellu. Hv. þm. (IP) hefir aldrei mótmælt því, að jeg hafi staðið með bannmálinu. En jeg býst ekki við, að hv. þm. (IP) takist að gera mig tortryggilegan, þegar jeg er búinn að sýna þjóðinni, hvernig aðdróttanir hans eru. Þær munu þá liggja á honum eins og þungt farg.