08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í D-deild Alþingistíðinda. (3260)
77. mál, vínsala ríkisins á Siglufirði
Sigurður Eggerz:
Hv. 2. þm. S.-M. (IP) ljet í veðri vaka, að jeg hefði ekki rætt þetta mál nægilega við aðra menn, áður en jeg ákvað útsölustaðina. En þetta er gripið úr lausu lofti. Því að jeg ræddi málið einmitt mjög vandlega við formann sendifararinnar til Spánar, Svein Björnsson, og einnig við Jón Krabbe. Vildi jeg fyrst ekki hafa nema einn útsölustað, en ljet þó af því, til þess að eiga ekki á hættu, að Spánverjar segðu samningnum upp þegar í stað. Yfirleitt hefir þessi hv. þm. talað með svo miklu ábyrgðarleysi, að undrum sætir. Hann segir, að við getum reynt, hvort Spánverjar segi upp samningnum, ef við fækkum útsölustöðum vínanna. En er þarna ekkert í hættu? Það getur kostað miljónir króna. Nú stendur hv. deild í sömu sporum og jeg stóð, þegar jeg átti að gera ákvarðanir um fjölda útsölustaðanna. Vill hv. deild, að útsölustaðirnir sjeu lagðir niður, og vill hún taka á sig ábyrgðina á afleiðingunum? Mig langar ekki til þess.