08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í D-deild Alþingistíðinda. (3263)
77. mál, vínsala ríkisins á Siglufirði
Ingvar Pálmason:
Jeg skal nú vera ákaflega stuttorður, en ætla aðeins að gera örlitla aths. við orð hæstv. forsrh. (JM). Hann sagði, að jeg tæki upp aftur þær umræður, sem hefðu orðið, þegar talað var um, hvort látið skyldi undan Spánverjum eða ekki. Það má vel vera, að svo sje. Jeg var þá ekki á þingi og get ekki sagt um, hvaða orð þá fjellu. Jeg geri ekki heldur ráð fyrir, að jeg hafi sagt nokkuð, sem ekki var búið að segja áður.
Hæstv. ráðh. (JM) sagði, að Spánverjar hafi ekki gert neinar kröfur um útsölustaði. Þetta var einmitt það, sem jeg hjelt fram. En auðvitað var engin deila um það, að einhver útsölustaður skyldi hafður, heldur aðeins um það, hvort þeir skyldu vera einn eða fleiri.
Hv. þm. Vestm. (JJós) hefir lýst yfir því, að hann væri ekki viðbúinn að greiða atkv. með því að leggja útsölustaði Spánarvína niður. Það má vera, en hitt sýnist tilgangslaust, að vísa þessu máli nú til stjórnarinnar, þar sem hún hefir nú lýst yfir því, að hún sæi sjer ekki fært að gera neitt. Hitt er skylt, að þingið lýsi yfir, hvaða afstöðu það hefir í málinu.