06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í D-deild Alþingistíðinda. (3355)
112. mál, húsmæðraskóli að Hallormsstað
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg sagði ekkert um það, að jeg væri hræddur við skaðabótamál. Jeg sagði, að jeg væri hræddur við að gabba þessa konu á þann veg, að láta hana leggja í kostnað við að útvega upplýsingar til þess að geta svarað þessari spurningu, svo að nokkuð sje á að byggja. Það er auðsætt, að hún getur ekki svarað nema að leggja í kostnað og gera sjer töluvert ómak. Og þótt jeg óttist ekki skaðabótamál, þá er mjer það ljóst, að þing og stjórn getur ekki heimtað af þessari konu að leggja á sig talsvert erfiði og kostnað, án þess að fá það bætt. En till. gerir ekki ráð fyrir því. Það hlýtur þá að byggjast á því, að gengið sje út frá því sem gefnu, að það verði að samkomulagi síðar. Það þori jeg fyrir mitt leyti ekki að telja víst. Annars finst mjer ekkert undarlegt að detta í hug bætur einmitt út af því, sem gerst hefir á þessu þingi. Það þótti nauðsynlegt að bæta upp þeirri konu, sem hafði fengið fyrirheit um Staðarfellsskólann, í fjárlögum fyrir næsta ár. Hjer er ekki næsta mikill munur. Það var aldrei tekin ábyrgð á, að Staðarfell yrði laust í næstu fardögum. Hún samdi sjálf við ábúandann á Staðarfelli, að hann skyldi halda ábúðinni til fardaga 1927, án þess að stjórnin væri þar til kvödd. Svo að það reyndi aldrei á það, hvort Staðarfell gæti ekki fengist laust í fardögum næstk. En af því að það kemur ekki þessu máli við, kæri jeg mig ekki um að fara út í það.
Hv. þm. (JJ) sagði, að húsmæðraskólinn á Norðurlandi væri dauður. Það er ekki satt. Hann sefur reyndar, en hann er ekki dauður. Það er áreiðanlegt, að hann vaknar upp fyr eða síðar. Og jeg er viss um, að Norðlendingar taka því ekki með neinum þökkum að verða að geyma þessi 9 eða 10 ára gömlu lög um skólann, meðan nýir skólar, sem engin lög eru til um, verða settir á stofn annarsstaðar. Það er auðvitað, að þeir geta ekki sætt sig við, að hjer sje stofnaður nýr skóli, ef þeirra er ekki stofnaður a. m. k. samtímis. Það er þess vegna alveg víst, að ef setja á þennan skóla á stofn þar fyrir austan, þá verður að stofna Norðurlandsskólann um leið. Það verða menn að gera sjer alveg ljóst.
En fyrst þessi kona hefir nú skóla í Mjóanesi, sem er næsti bær við Hallormsstað, eftir því sem mjer er sagt, þá sýnist mjer vegur að halda áfram skólanum þar og veita einhvern styrk til hans. Jeg þekki reyndar ekki þá jörð, en geri þó ráð fyrir, að hún sje miklu minni en Hallormsstaður. Jeg veit ekki heldur, hvort ábúandinn á Hallormsstað vill sjá af landsnytjum. En ef setja á skóla þar, þá verður hann að sjá af talsvert miklu. Það er því ekki einungis Sigrún Blöndal, sem þarf að spyrja, heldur líka ábúandinn á Hallormsstað. En ef þessa fyrirspurn, sem hjer er um að ræða, á að gera, eins og mjer skildist á hv. 3. landsk. (JJ), þá getur hver og einn spurt, og hv. 3. landsk. líka, ef spurningin er gerð með þeim formála, að ekki megi gera sjer von um endurgjald á neinum kostnaði, sem gangi til þess að afla upplýsinga til þess að fá ábyggilegt svar.
Jeg held í raun og veru, að ekki sje hægt að gefa neinar vonir um, hvenær þessi skóli verði settur á stofn. Og þá er það ekki meira virði að fá fyrirspurn frá stjórninni en hverjum öðrum.