14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í D-deild Alþingistíðinda. (3373)
89. mál, eftirgjöf á skuld
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg man ekki, hvort jeg nefndi þá upphæð, sem eftir var gefin, en hún er kr. 14444,50.
Jeg viðurkenni það, að það er dálítið óvenjulegt undir svona kringumstæðum að veita greiðslufrest á þeim hluta skuldar, sem ekki er eftir gefinn, og það án tryggingar fyrir þeirri greiðslu. En jeg veit ekki, hvort unt muni hafa verið að fá slíka tryggingu, og á það verður nokkuð að líta.
En hvað snertir uppgjöf á lánum til einstakra hreppa, þá vil jeg taka það fram, að það fer að mínum dómi ekki vel á því, að það opinbera fylgi sömu reglum í viðskiftum sínum við landsmenn eins og eigandi einkafyrirtækis getur leyft sjer að gera í sínum viðskiftum. Hann getur gert samning, sem hann telur í alla staði rjettmætan, án þess þó að geta sýnt fram á, að svo sje. En maður verður að heimta það af hinu opinbera, t. d. þegar um eftirgjöf á skuld er að ræða, að málið liggi þannig fyrir, að hægt sje að sýna öllum fram á það, að eftirgjöfin sje rjettmæt eftir ástæðum. Því frekari kröfur verður hjer að gera, sem menn verða yfirleitt að gera strangari kröfur um skýr reikningsskil af hálfu hins opinbera heldur en um það, hvað einstakir menn kunna að gera fyrir sjálfa sig á sína eigin ábyrgð. Jeg játa, að það er ekki heppilegt, að það opinbera sje að gefa einkafyrirtækjum hluta af skuldum þeirra við sig, en slíkt er óhjákvæmileg afleiðing af því, þegar það opinbera fer að reka slík fyrirtæki sem þessa verslun, og það er einmitt eitt af því, sem mælir á móti því, að það opinbera sje að reka verslun. En þótt hjer sje um eftirgjöf að ræða, sem orðið hefir að byggja á áliti forstjóra Landsverslunar, hvort rjettmæt væri, og ekki sjeu fyrir hendi frekari gögn um rjettmæti hennar, þá leiðir það ekki af því, að beita eigi sömu reglu hvað snertir uppgjöf á skuldum sveitarfjelaga, að heimta þar ekki skýrslu, sem standist gagnvart hlutlausum dómum almennings. Þær kröfur verður hjer að gera. Og þar sem hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) hefir dregið hjer inn í umræðuna eftirgjöf til Grunnavíkurhrepps, þá verð jeg að segja það, að mjer virðist ekki hægt annað en slá slíku á frest þangað til þau gögn koma fram, sem gætu talist ótvíræð sönnun fyrir því, að uppgjöf sje rjettmæt. Dómur þingmanns fyrir hlutaðeigandi kjördæmi er ekki nægur til þess að skera úr um rjettmæti slíkrar uppgjafar. Hann getur ekki skoðast sem óviðriðinn það mál.