10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (3389)
Málshöfðun gegn þingmanni
Tryggvi Þórhallsson:
Fyrir 8 árum barst til þessarar hv. deildar ósk um að mega höfða mál móti einum þm. deildarinnar. Sú varð meðferð málsins þá, að sá háttv. þm., Jón Magnússon forsætisráðherra, kvaddi sjer hljóðs 18. júlí 1918 og óskaði, að forseti bæri beiðnina undir atkvæði. Nú kom fram sú ósk í lok síðasta fundar þessarar hv. deildar frá hæstv. fjrh. (JÞ) að mega höfða mál gegn mjer. Jeg vildi grípa fyrsta takifæri til að óska þess, að málið fengi samskonar meðferð nú. Jeg þarf ekki að segja neitt um tilefni til þessa; öllum er það kunnugt. Stuttu eftir að jeg hafði þessi ummæli barst mjer ósk um að fara yfir ræðu mína svo fljótt sem jeg gæti. Hafði jeg góða aðstöðu til þess, þar sem jeg hafði áður skrifað aðaluppistöðu þeirrar ræðu minnar, og hefi nú leiðrjett ræðuna. Leyfi jeg mjer að óska, að deildin verði við þeirri ósk hæstv. fjrh. (JÞ) að mega lögsækja mig, ekki aðeins fyrir þau ummæli, sem hjer er um að ræða, heldur og fyrir öll önnur ummæli mín í garð hans á þessu þingi. Óska jeg, að allir þdm., bæði flokksbræður mínir og aðrir, greiði atkv. með þeirri till., er jeg ætla að bera hjer fram. Hún hljóðar svo:
„Neðri deild Alþingis gefur fult leyfi til þess af sinni hálfu, að Jón Þorláksson fjármálaráðherra megi lögsækja Tryggva Þórhallsson, þingmann Strandamanna, fyrir eitt og sjerhvert orð, sem hann hefir mælt í ráðherrans garð á þessu þingi“.