10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (3403)

Málshöfðun gegn þingmanni

Tryggvi Þórhallsson:

Mjer finst hæstv. fjrh. ná alveg tilgangi sínum, ef till. mín verður samþykt. Hún er svo rúm, að hæstv. ráðh. getur um alt fengið vilja sinn, og rýmri en beiðni hans. Jeg mælist því enn til, að mín till. verði samþykt.