10.05.1926
Neðri deild: 75. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2418 í B-deild Alþingistíðinda. (3410)

Málshöfðun gegn þingmanni

Forseti (BSv):

Út af orðum háttv. 1. þm. N.-M. (HStef), þar sem hann kvaðst ekki skilja í því, hvort þetta mál væri hjer til umræðu og meðferðar eða ekki skal jeg láta þess getið, að jeg lýsti því, að jeg mundi fara að fordæminu 1918 um að taka þetta mál síðar á dagskrá, nema ef háttv. flm. (fjármálaráðherra) óskaði það þegar tekið til meðferðar og afgreiðslu. Nú hefir hæstv. fjrh. fallið frá þessari beiðni sinni um heimild til málshöfðunar, en mjer skilst, að hv. þm. Str. haldi enn við þá kröfu, að till. hans verði borin upp til atkvæða.