14.05.1926
Sameinað þing: 7. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2421 í B-deild Alþingistíðinda. (3420)

Kosningar

Forseti (JóhJóh):

Það hefir komið fram ósk um það, að 2. málið á dagskránni yrði tekið út, sökum þess að till. til þál. er fram komin frá hv. 2. þm. Reykv. (JBald) um að fjölga mönnum í ráðgjafarnefndinni. En þar sem nú er komið að þingslitum, vildi jeg ekki verða við þeirri ósk, nema þingið ljeti vilja sinn í ljós um það. — Jeg vil því leyfa mjer að bera það undir þingið, hvort það sje því samþ. að 2. málið sje tekið af dagskránni.