29.03.1926
Neðri deild: 43. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (36)

1. mál, fjárlög 1927

Jörundur Brynjólfsson:

Það voru aðeins fáein orð, sem jeg vildi sagt hafa viðvíkjandi brtt. frá mjer á þskj 230. Það er brtt. III., um 1200 kr. utanfararstyrk til Óskars læknis Einarssonar. Hann var nokkur ár læknir í Grímsneshjeraði við ágætis orðstír. Vegna heilsubilunar varð hann að sækja brott þaðan í annað hjerað, sem ekki er eins erfitt að gegna. Sótti hann því um og fjekk veitingu fyrir Flateyrarhjeraði, en heilsan bilaði þá alveg, og gat hann því ekki tekið við hjeraðinu strax og sigldi utan á síðastl. hausti. Þú að heilsan væri tæp, gat hann alt fram að síðastl. áramótum kynt sjer ýmsar nýjungar í læknisvísindum, því maðurinn er mjög áhugasamur um alt, er snertir fræðigrein hans, og þó að hann gengi ekki heill til leiks, lagði hann mikið á sig til að fullkomna sig í læknislistinni, enda er maðurinn hinn efnilegasti og kappsfullur mjög. En nú hefir hann legið rúmfastur um skeið.

Meðan hann var læknir í Grímsneshjeraði, varð hann, vegna þess að heilsa hans leyfði ekki annað, að hafa aðstoðarmann sjer við hlið, til að gegna hinum erfiðari læknisvitjunum, og fór ekki sjálfur nema mikils þyrfti við í lengri ferðalög, enda rann og megnið af launum hans og tekjum af hjeraðslæknisembættinu til aðstoðarlæknisins. Nú hefir lega hans í sjúkrahúsum erlendis haft mikinn kostnað fyrir hann í för með sjer, en von er talin um að hann fái bót meina sinna og geti bráðlega tekið við hjeraðslæknisembætti sínu á Flateyri, er hann kemur heim aftur. Það hefir verið venja hjer á landi, að læknar hafa verið styrktir til utanferða til að afla þeim aukinnar þekkingar í því, sem að starfi þeirra lýtur og ekki er kostur á að þeir geti öðlast hjer. Nú hefir í þessu skyni einnig á næsta ári verið áætluð dálítil fjárfúlga í fjárlagafrv., en Óskar læknir getur ekki hlotið neitt af því fje, þar eð því hefir þegar verið ráðstafað, eða lofað að veita það læknum, sem ætla að fara utan, að því er landlæknir hefir skýrt mjer frá, og þess vegna er þessi brtt. mín fram komin. Jeg vænti þess, að háttv. deild þóknist að samþykkja þessa brtt., sem svo margar og ríkar ástæður mæla með, en að öðru leyti ætla jeg ekki að fara fleiri orðum um þetta eða þann hluta fjárlaganna, sem hjer liggur fyrir; það mun fara nógur tími samt í umræður, þó hver þm. tali ekki oftar en nauðsyn ber til.