04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (364)
14. mál, áveita á Flóann
Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):
Háttv. þm. Str. hefir mislíkað það við landbn., að hún skuli ekki hafa tekið meira tillit til óska hana, er hann bar fram við 1. umr. þessa máls, heldur en hún hefir gert. En mjer finst, að hv. þm. ætti að vera ánægður með undirtektir nefndarinnar, því að hún ber fram þá ósk, að ráðuneytið eða hæstv. atvrh. gæti þess, þegar sú nefnd verður skipuð, sjeu ráðgert er samkvæmt þessu frv., að þá verði þar fulltrúi frá Búnaðarfjelagi Íslands. Jeg geri ekki ráð fyrir, að sá fulltrúi verði ofurliði borinn um þær till., sem hann hefir fram að bera, svo framarlega sem fullsýnt er, að þær till. megi verða málinu til bóta. Jeg geri ekki ráð fyrir, að því er snertir framkvæmd verksins, sem eftir er, að það þurfi að koma til kasta meiri eða minni hl. í þessu máli. Jeg þykist viss um, hverjum sem þetta mál yrði fengið í hendur, þá myndu þeir gera það eftir bestu vitund, og þá er jeg alveg viss um það, að till. þess manns, sem tekur sæti í þessari nefnd frá hendi Búnaðarfjelagsins myndi fá að njóta sín. Einnig virðist mjer, að þessi umkvörtun frá hv. þm. Str., að því er snertir framkvæmdir þessa máls, komi heldur seint. Jeg get að vísu viðurkent það, að þegar lögin um þetta mál voru samin, þá átti þessi hv. þm. ekki sæti hjer á Alþingi, en síðan er liðinn alllangur tími, og jeg minnist ekki að hafa orðið þess var, að nokkursstaðar hafi komið fram óánægja yfir því hvernig framkvæmd verksins hefir verið hagað á Flóaáveitusvæðinu. Það, sem jeg hefi sjeð, er, að menn telja, að verkið gangi vel og eru ánægðir með það. Jeg hefi haft allmikil kynni af því, með því að það hlaut að nokkru að koma til kasta okkar fulltrúa Árnessýslu. Þetta finst mjer skylt að koma fram með, úr því að verið er að segja, að Búnaðarfjelagið hefði átt að hafa eftirlit með verkinu og að með því móti hefði verið betur sjeð fyrir framkvæmd verksins. En jeg efast mikið um, að svo hefði verið. Jeg er ekki með þessu að kasta rýrð á Búnaðarfjelag Íslands, en mjer finst ekki mikil ástæða til að vera mjög óánægður yfir því, þótt það hafi ekki ráðið hingað til. Jeg get heldur ekki fallist á, að það sje hyggilegt, þegar um miklar framkvæmdir er að ræða, um verk, sem er vandasamt og kostar mikið fje, að skifta því um umsjónarmenn þegar minst varir. Jeg held, að hyggilegast sje að haga umsjón verksins og yfirráðum við það þannig, að sá sem byrjar á því, haldi því áfram þar til lokið er: það er á engan hátt hægt að rjettlæta það, að skift sje um yfirstjórn á slíku verki, nema því aðeins, að þeir menn, sem áður höfðu yfirstjórn þess, hafi gert sig seka um einhver glappaskot, eða forstaða verksins hafi ekki farið vel úr hendi. En því verð jeg algerlega að mótmæla, að hjer hafi átt sjer stað. Mjer er vel kunnugt um þetta. Jeg held því, að hv. þm. Str. megi vera vel ánægður með þessa afgreiðslu landbn. Jeg hefði fyrir mitt leyti talið það lítt forsvaranlegt, að nú væri farið að breyta þannig til að fela nú Búnaðarfjelagi Íslands umsjón verksins. Það getur vel verið, þegar verkinu er lokið, að Búnaðarfjelaginu verði falin umsjón með frekari starfrækslu áveitunnar, en jeg tel ekki kominn tíma til þess fyr en verkinu er að fullu lokið. Búnaðarfjelagið lagði ekki ráðin á upphaflega og hefir ekki haft neina forgöngu um það, og úr því að ekki er sýnilegt, að neitt illa fari um framgang verksins, þá finst mjer engin ástæða til þess að skifta um.
Háttv. þm. Str. drap á annað atvinnufyrirtæki fyrir austan fjall, sem hefði kostað mjög mikið, og hversu þeim, sem hefði haft umsjón með því, hefði mistekist og verkið farið geypilega fram úr áætlun, og vildi með því gefa í skyn, að það myndi hafa verið öðruvísi, ef Búnaðarfjelagið hefði haft umsjón með verkinu. (TrÞ: Jeg sagði ekkert um það). Nei, en hv. þm. rökstuddi þetta með því, að Búnaðarfjelaginu hefði ekki verið falin umsjón með Skeiðaáveitunni og illa hefði tekist til með framkvæmd hennar. En hafi þetta ekki verið meining hv. þm., þá sje jeg ekki, hvaða erindi þetta atriði átti hjer inn í umræðurnar. En jeg skal nú engan dóm á þetta mál leggja, en aðeins benda á eitt atriði, sem ekki hefir átt hvað minstan þátt í því, að fyrirtækið varð svo dýrt en það eru hinar breyttu kringumstæður á meðan á verkinu stóð, og þó að það hafi máske ekki verið eingöngu fyrir þá sök, þá hygg jeg, að það hafi gert langmest, og Búnaðarfjelaginu myndu eins hafa reynst þeir tímar svo erfiðir, að jeg hygg, að því mundi hafa verið ofvaxið að ráða við þá erfiðleika, er þeir sköpuðu. Jeg held, að þó að Búnaðarfjelaginu hefði verið falið að sjá um áveituna, þá hefði verkið líklega orðið eins dýrt, svo að það skiftir litlu máli. Jeg er ekki viss um, að þó að Búnaðarfjelagið hefði haft umsjón með þessu verki, að þá hefði verið unt að komast hjá því að styrkja eitthvað þetta hreppsfjelag í líkingu við það, sem gert hefir verið út af áveitumálinu. Og ekki benda tillögur starfsmanna Búnaðarfjelagsins um þetta mál á það, að því hefði verið sýnna um: það en öðrum, eftir till. þeim að dæma, sem komu fram frá þeim. Þær hafa engan veginn verið á þá lund, að það hafi verið bændum til nokkurs ljettis að fara eftir þeim, því að það er alveg það gagnstæða. Þær till., sem gerðar hafa verið af tveim starfsmönnum Búnaðarfjelagsins, hafa verið svo lítilfjörlegar, að það hefði mátt alveg á sama standa, hvort farið hefði verið eftir þeim eða ekki. Alþingi í fyrra gerði þar rækilegar umbætur, og ef bændur á þessu svæði geta staðið straum af fjárreiðum sínum gagnvart áveitunni, þá er það beint síðasta Alþingi að þakka. Jeg held því, að landbn. hafi afgreitt þetta mál eina og skynsamlegast var.
Það er fjarri mjer að vilja draga undan umsjá Búnaðarfjelags Íslands umsjá ræktunarmála. En þegar búið er að fela öðrum framkvæmd verksins, eins og hjer stendur á, og mikill hluti þess er unninn, þá tel jeg ekkert vit í að fara að skifta um umsjá þess að ástæðulausu. Sje jeg ekki, að Búnaðarfjelagið þurfi að vera móðgað af þessu.