04.03.1926
Neðri deild: 21. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (366)

14. mál, áveita á Flóann

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg hefi haft þá ánægju að hlusta fyrst og fremst á form. landbn. (HK), þá frsm., hv. 2. þm. Árn. (JörB), og síðast hæstv. atvrh. (MG). Allir höfðu þeir mikið að segja um það, sem jeg sagði. Út af orðum þeirra vil jeg fyrst og fremst taka það fram, að það, sem mjer gekk til, var alls ekki að kasta hnútum til hv. landbn., heldur vildi jeg mótmæla því, að stærsta jarðræktarfyrirtæki landsins væri framkvæmt án þess, að leitað væri ráða hjá þeirri stofnun, sem slík mál heyra aðallega undir.

Annars vildi jeg óska Árnesingum þess, að þeir þyrftu ekki vegna Flóaáveitunnar að stíga sömu þungu sporin til þings og stjórnar og íbúar Skeiðaáveitusvæðisins hafa þurft að gera, og mínar tillögur í málinu hafa að því miðað að forða þeim frá þeirri göngu.