08.03.1926
Efri deild: 22. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (370)
14. mál, áveita á Flóann
Atvinnumálarðherra (MG):
Frv. þetta flutti stjórnin í Nd., og gekk það greiðlega og með litlum breytingum gegnum þá deild. Jeg vildi óska, að svo yrði einnig hjer, og vil taka það fram, að í Flóaáveituna er þegar lagt svo mikið fje, að það verður að tryggja, að verkið verði unnið til enda og að þau not hafist af áveitunni, sem hægt er.
Kostnaðurinn af Flóaáveitunni var áætlaður um 1½ miljón króna, en hann verður ekki svo mikill. Jeg vona, að sú eiginlega áveita kosti ekki meira en 1 miljón króna, og af því leggur ríkissjóður fram ¼ sem styrk, en ¾ hluta borga þeir, sem búa á áveitusvæðinu, og hafa þeir fengið lán úr ríkissjóði til greiðslu á þessum hluta. Ríkissjóður hefir því sinna hagsmuna að gæta, því að þess frekar verður lánið endurgreitt, sem meiri not eru af áveitunni. En nú þarf að leggja vegi um áveitusvæðið og koma upp einu eða fleiri mjólkurbúum, því að allir ganga út frá, að á þessu svæði verði að mestu leyti nautpeningsrækt.
Jeg vil geta þess, að búist er við, að áveitunni verði lokið seinni part næsta sumars, og vona jeg, að þá verði komið upp sem mest af flóðgörðum þeim, sem nauðsynlegir eru.
Þetta mál var í landbn. í Nd., og legg jeg til, að svo verði einnig hjer.