12.03.1926
Efri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (403)

12. mál, kynbætur hesta

Eggert Pálsson:

Sökum þess að hv. frsm. (ÁH) er veikur, hefi jeg tekið að mjer að fylgja frv. þessu með fáum orðum úr garði nefndarinnar. Hinsvegar er mál þetta ekki svo stórt, nje heldur ætti það að verða deilumál, svo það ætti ekki að verða því til tjóns, þótt hv. frsm. sje ekki viðlátinn.

Það hafa þrisvar áður verið gefin út lög um þetta efni. Fyrst lög frá 11. des. 1891. Síðan 20. des. 1901, sem eru einskonar viðaukalög við hin, en svo er þeim aftur breytt með öðrum viðaukalögum frá 14, nóv. 1917.

Sjálf lögin um samþyktir um hrossakynbætur virðast eftir frv. eiga að gilda áfram, þar sem mönnum sýnist að nota slíkt. En hinsvegar gerir þetta frv. það að skyldu, að haft sje nokkurt eftirlit alstaðar í sveitum með hrossakynbótum.

Frv. þetta var borið fram af hv. 2. þm. Skagf. (JS) á þingi í fyrra, en varð þá ekki útrætt. Nú er það borið fram af hæstv. stjórn og hefir verið samþykt í Nd.

Nefndin álítur, að frv. þetta sje til bóta, ef það yrði samþykt. En hinsvegar skildist henni, að það vantaði eitt nauðsynlegt ákvæði í frv., sem sje um það, hvaðan taka ætti það fje, sem borga verður til framkvæmdar því eftirliti, sem lögin skipa fyrir um. Þetta eftirlit hlýtur að kosta eitthvað. Það er ómögulegt að gera nokkuð, sem kostar fyrirhöfn, nema borgað sje fyrir það. T. d. sú nefnd, sem kosin verður til þess að hafa eftirlit með kynbótum, verður að fá borgun fyrir starf sitt, því það er ekki lítil fyrirhöfn að fara um sveitirnar og líta eftir slíku. Virðist ógerlegt að leggja slíkt á menn án þess að þeim verði borgað fyrir. Eins er um það, ef þyrfti að einangra hesta. Slíkt verður ekki gert án kostnaðar. Annaðhvort verður þá að gera, að setja upp sjerstakar girðingar eða hýsa þessa hesta að öðrum kosti, en hvorttveggja kostar fje og fyrirhöfn. Nefndin leggur því til, að bætt sje inn í frv. ákvæði um það, hvaðan þetta fje skuli koma, og hefir leyft sjer að koma fram með brtt. í þá átt.

En nú er fram komin brtt. frá hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) við brtt. nefndarinnar. Sú till. er fram komin af svipuðum ástæðum og hin. Háttv. flm. (EÁ) finnur eins og nefndin, að það er nauðsynlegt að sjá fyrir fje til þess að standast kostnaðinn við framkvæmd laganna. En hann vill takmarka það, hvað leggja megi á hrossaeigendur, með því að slá því föstu, að gjaldið megi ekki fara fram úr 8 kr. á hvert folald. Hitt borgi svo sveitarsjóður, sem á vantar. Það má nú segja, að sveitarsjóðirnir hafa nógu breitt bakið. En nefndin er samt á móti þessari till. Henni skilst ekki betur en rjett sje, að hrossaeigendur beri slíkan kostnað, enda mun oftast reynast svo í sveitum, að folöld verða svo mörg, að það nægi, ef greiddar eru 8 kr. af hverju. Þar sem hrossaeign er sjerstaklega lítil, getur það hugsast, að gjaldið verði nokkuð hátt. En þá mætti hugsa sjer, að menn slægju sjer saman um notkun á einum hesti, eða gerðu auk heldur samning við kynbótanefnd í næstu sveit um að leiða þangað þær fáu hryssur, sem um er að ræða. Nefndin vill því ekki fallast á þessa till., en heldur því fastar á sinni eigin till.

Viðvíkjandi annari brtt. frá hv. l. þm. Eyf., um að undanþiggja konur frá því að skipa þessa nefnd, þá skal jeg játa það, að mjer virðist óviðkunnanlegt að láta konur skipa hana að nokkru eða öllu leyti.

Skal jeg svo ekki fara um mál þetta fleiri orðum. En jeg vil að lokum mælast til þess, að frv. verði samþykt með brtt. nefndarinnar á þskj. 119.