12.03.1926
Efri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (404)

12. mál, kynbætur hesta

Einar Árnason:

Jeg skal minnast fyrst á till. á þskj. 130. Þessi till. er einkum flutt til þess að ákveða nánar efnið í brtt. þeirri, sem hv. landbn. flytur, sjerstaklega í tveim atriðum. Í brtt. er talað um allan kostnað, er af kynbótafolanum leiði, en það er ekki skilgreint nánar, hvaða kostnaður það geti verið. Í frv. er gert ráð fyrir, að settar verði girðingar vegna þessara fola, og þær girðingar hljóta að kosta allmikið fje. En jeg lít svo á, að það sje ekki sanngjarnt nje rjett, að þeir, sem nota folann, beri kostnaðinn við slíka girðingu algerlega einir. Sá kostnaður getur orðið mjög mismunandi frá ári til árs, svo gjaldið, sem kemur á hvert folald, verður í sumum árum tiltölulega miklu hærra en í öðrum. Jeg tel því rjett að ákveða nánar, við hvað er átt með árlegum kostnaði, að það sje aðallega fóðrun hestsins og umsjón á honum; að annar tilkostnaður, sem gerður er fyrir lengri tíma, svo sem girðing, komi þar ekki til greina. En þó þetta sje gert, þá getur samt gjaldið, sem kemur á hvert folald eftir till. landbn., orðið óhæfilega hátt, t. d. ef sveitarfjelag keypti kynbótahest eða tæki á leigu (sem oft mundi verða) og hesturinn yrði lítið notaður sum árin. Jeg legg því til, að sett sje það hámark, að aldrei sje gjaldið hærra á hvert folald en 8 kr., og afgangurinn af kostnaðinum, ef einhver verður, verði greiddur úr sveitarsjóði.

Jeg þykist geta talað um þetta atriði af nokkurri reynslu, því að einmitt í mínum hreppi hefir verið starfandi kynbótanefnd, og sveitarsjóður hefir sjálfur átt kynbótahestinn. Reynslan var sú, að sum árin varð sveitarsjóður að borga eitthvað af kostnaðinum. Virðist heldur ekkert við það að athuga, þar sem til kynbótanna er stofnað í hagamunaskyni fyrir sveitarfjelagið í heild. Það er svo í mörgum hreppum að folöld eru mjög fá sum árin. Eftir búnaðarskýrslum er vel hægt að átta sig á, hve mörg % folöldin eru af hrossafjöldanum. Er það mjög misjafnt í hinum ýmsu sýslum landsins. Árið 1921 voru í Húnavatnssýslu 8½% folöld, í Skagafjarðarsýslu 71/3%, í Eyjafjarðarsýslu 5% og í Þingeyjarsýslu rúmlega 2%. En nú er reynsla fyrir því, að þessi prósenttala getur vikið mikið frá meðaltalinu. T. d. í einum hreppi í Eyjafjarðarsýslu hefir hún eitt árið komist upp í 8–10%, en aftur annað ár lækkað niður í 2%. Ef gert er ráð fyrir, að í hreppi sjeu 300 hross, en það er meira en meðaltal, að minsta kosti í Eyjafirði, ættu þar að vera 15 folöld á ári að meðaltali, en reynslan hefir sýnt, að þau geta komist niður í 6. Þegar þess er gætt, að árlegur kostnaður við kynbótahestinn getur aldrei orðið minni en 200–300 krónur á ári, þá er auðsjeð, að tollurinn verður ósanngjarnlega hár sum árin; getur orðið frá 8–50 krónur. Þegar svona er óvíst, hve mikið menn mundu þurfa að borga fyrir notkun folans, er hætt við, að það dragi úr notkuninni. Jeg segi fyrir mig, að jeg mundi verða hikandi að nota folann, ef jeg ætti á hættu að þurfa að borga máske helming árskostnaðar hans, fyrir eitt folald. Jeg tel því rjett, að jafna þessu til, þannig, að ef gjaldið verður of hátt, greiði sveitarsjóður það, sem fram yfir er. En um það má lengi deila, hvort markið eigi að vera 8 eða 10 kr. og skal jeg ekki halda því fram, að 8 kr. sje það eina rjetta, en eftir reyslu minni mun það láta mjög nærri. Jeg skal viðurkenna, að svona er það ekki í öllum sveitum, t. d. þar, sem er mikil hrossaframleiðsla, enda kemur þá ekki til, að sveitarsjóður þurfi nokkuð að leggja fram. Þetta er aðeins þar, sem framleiðslan er svo lítil, að viðkoman gerir ekki meir en rjett að halda við, og þeir hreppar hygg jeg, að sjeu fleiri en hinir.

Jeg hefi borið þessa brtt. mína undir einn mann úr landbn. Nd., og hann telur hana til bóta.

Þá hefi jeg ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, og um brtt. á þskj. 129 þarf jeg ekki að segja mikið. Mjer skildist á hv. frsm. nefndarinnar, að nefndin hefði ekkert á móti henni, en að jeg flyt hana, er í beinu framhaldi af því, sem jeg hefi áður haldið fram um að konur geti skorast undan kosningu til ýmissa starfa, sem þær mundu eiga bágt með að gegna. Jeg get heldur ekki hugsað mjer, að hv. deild haldi svo fast við að skylda konurnar til að tala við kosningu til þeirra starfa, sem þeim eru ógeðfeld, að hún geti ekki fallist á þessa brtt.