15.03.1926
Efri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (416)
12. mál, kynbætur hesta
Einar Árnason:
Um það, sem hv. frsm. (ÁH) sagði um 3. gr., þýðir ekki að deila hjeðan af, þar eð búið er að samþykkja brtt. þá, sem jeg bar fram við 2. umr. En út af því, að sveitarsjóður beri kostnaðinn af kynbótunum, þá fæ jeg það ekki út úr orðalagi greinarinnar, að svo þurfi ætíð að vera. Það er mjög vel hugsanlegt, að kynbótanefnd komist að samkomulagi við folaeigendur, án þess að það þurfi að kosta sveitarsjóð nokkuð. Falla þá framkvæmdirnar undir ákvæði 3. gr. Ákvæði 8. gr. mundu aðallega koma til greina þegar sveitarsjóður ætti sjálfur kynbótafolana (eins og oft hlýtur að koma fyrir), og þyrfti þannig hvort sem væri að bera af þeim kostnaðinn. Annars tekur það því ekki að fjölyrða um þetta ákvæði, þar eð hv. deild hefir nú samþykt till. mína um það.
Það, sem háttv. þm. A.-Húnv. sagði um brtt. mína á þskj. 129, er náttúrlega eðlilegt út frá hans sjónarmiði. En það, að jeg flyt þessa till., er aðeins eðlilegt framhald af því, sem jeg hefi haldið fram um þessi mál í umræðum um frv. til laga um kosningar í málefnum sveita og kaupstaða. Ef mínar till. hefðu þá verið samþyktar, hefði þessi till. verið óþörf. En mjer finst ekkert á móti því að gefa konum rjett til að skorast undan kosningu í þessa nefnd, þótt þær hafi ekki þann rjett um hreppsnefndir, því að þar er óneitanlega nokkuð öðru máli að gegna.